Tendrun ljósanna á jólatrénu á Stakkagerðistúni, sem fara átti fram klukkan 17 í dag, hefur verið frestað vegna veðurs. Ljósin verða þess í stað tendruð þriðjudaginn 1. desember klukkan 17, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.
Dagskráin verður að öðru leyti óbreytt. Lúðrasveit Vestmannaeyja og Litlu lærisveinarnir koma fram og jólasveinarnir mæta þegar ljósin hafa verið tendruð.