Fyrri ferð Herjólfs föstudaginn 27. nóvember fellur niður vegna veðurs og sjólags. Um er að ræða brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og frá Þorlákshöfn kl. 10:45, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga og óskað er eftir skilningi farþega.
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis samkvæmt áætlun og þar til annað verður tilkynnt.
Farþegar eru jafnframt minntir á að á þessum árstíma geti þurft að færa siglingar milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í annarri hvorri höfninni.