Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki

Vegna orða og efasemda Páls Magnússonar – Ef að hugur og vilji eru til staðar þá er leiðin greiða og allir velkomnir. Það kom mér sannarlega á óvart að sjá viðbrögð Páls Magnússonar við þeim orðum sem ég lét falla í samtali við Eyjafréttir um að prófkjör gæti verið góð leið til að sameina sjálfstæðismenn […]

 Ég skal syngja fyrir þig í Salnum

ÁtVR – Átthagafélag Vestmanneyinga í Reykjavík vekur athygli á tónleikunum Ég skal syngja fyrir þig sem fram fara í Salnum í Kópavogi 27. febrúar. Söngurinn er í höndum Einars Ágústs, sem þekktur er fyrir veru sína í Skítamóral, auk þess að hafa meðal annars sungið með Pöpunum og farið fyrir hönd Íslands í Eurovision árið […]

Hinrik Hugi framlengir við ÍBV

Hinrik Hugi Heiðarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með félaginu út tímabilið 2027/28. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.  Í tilkynningu ÍBV segir ,,Hinrik Hugi er öflugur línumaður sem leggur sig allan fram í hvert einasta skipti sem hann stígur inn á völlinn. Með baráttuanda, krafti og vinnusemi […]

Díana Dögg öflug í sigri Blomberg-Lippe

Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir átti mjög góðan leik með Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi þegar liðið sigraði Göppingen 40-22. Díana Dögg skoraði fimm mörk í leiknum og gaf þrjár stoðsendingar. Andrea Jacobsen sem gengur í raðir ÍBV í sumar skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Þær eru báðar í lokahóp íslenska […]

Snjóþungt í Eyjum

Snjór í Eyjum.

Í gær kyngdi niður snjó í Vestmannaeyjum og hafa flest tæki bæjarins unnið að snjómokstri. Í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda segir að vegna mikils snjóþunga í Vestmannaeyjum á gangstígum og gangstéttum muni taka lengri tíma en venjulega að ryðja þá og gera greiðfært fyrir gangandi vegfarendur. Á meðan á þessum aðstæðum stendur eru ökumenn beðnir […]

Skvísudagur á Bókasafninu um helgina

Bókasafnið býður upp á skemmtilega dagskrá n.k. laugardag, 21. febrúar þar sem sérstakur skvísudagur verður haldinn í tilefni konudagsins. Dagskráin fer fram í Sagnheimum kl. 13 þar sem rithöfundurinn Ása Marín kemur í heimsókn og fjallar um bækur sínar, segir frá hvað veitir henni innblástur ásamt því að lesa brot úr nýjustu bók sinni, Stjörnurnar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.