Ég skal syngja fyrir þig í Salnum
Einar Ágúst og Eyjamenn flytja perlur við texta Jónasar Friðriks á tónleikunum.

ÁtVR – Átthagafélag Vestmanneyinga í Reykjavík vekur athygli á tónleikunum Ég skal syngja fyrir þig sem fram fara í Salnum í Kópavogi 27. febrúar.

Söngurinn er í höndum Einars Ágústs, sem þekktur er fyrir veru sína í Skítamóral, auk þess að hafa meðal annars sungið með Pöpunum og farið fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2000 með laginu Tell Me.

Eyjamenn leika undir og syngja raddir. Í hljómsveitinni eru Gísli Stefáns, Biggi Nielsen, Dúni Geirs, Sæþór Vídó, Þórir Ólafs og Jarl Sigurgeirs.

Á tónleikunum verða flutt lög við texta Jónasar Friðriks, sem á sinni ævi samdi texta fyrir Ríó Tríó, Sléttuúlfana, HLH-flokkinn, Ðe lónlí blú bojs, BG & Ingibjörgu og Björgvin Halldórsson, svo dæmi séu tekin.

Þar má nefna lög á borð við Dýrið gengur laust, Áðan í útvarpinu, Verst af öllu, Veisla á hóli, Góða ferð, Litli kall, Þrír litlir krossar, Diggi liggi ló, Kærastan kemur til mín og að sjálfsögðu stórsmellinn Ég skal syngja fyrir þig.

Fyrir áhugasama er hlekkur á miðasölu hér.

Nýjustu fréttir

ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista
Fiskur ríflega helmingur alls vöruútflutnings
Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar
Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð?
Kostnaður, kvíði og aðskilnaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.