Hinrik Hugi Heiðarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með félaginu út tímabilið 2027/28. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.
Í tilkynningu ÍBV segir ,,Hinrik Hugi er öflugur línumaður sem leggur sig allan fram í hvert einasta skipti sem hann stígur inn á völlinn. Með baráttuanda, krafti og vinnusemi er hann mikilvægur hlekkur í liðinu og lykilmaður í framtíðarsýn félagsins. Framtíðin er björt – og Hinrik Hugi er klár í næsta kafla”.
Hinrik Hugi er 22 ára línumaður. Hann var á láni hjá Haukum á síðasta tímabili en gekk aftur í raðir ÍBV fyrir þetta tímabil. Hinrik Hugi meiddist í leik með HBH, venslaliði ÍBV, í Grill66-deildinni fyrr í vetur og hefur ekkert leikið síðan.
Hann hefur leikið fyrir yngri landslið Íslands og var meðal annars hluti af u-20 ára landsliðinu sem lenti í 7. sæti á Evrópumótinu árið 2024.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.