ÍBV tapaði á Akureyri

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði naumlega með einu marki, 29-28, gegn KA í lokaleik 18. umferðar Olís deildar karla, á Akureyri í dag. Eyjamenn voru með yfirhöndina í byrjun leiks og náðu þriggja marka forystu, 4-7, eftir tíu mínútur. KA menn jöfnuðu leikinn eftir 20. mínútur í 10-10 en Eyjamenn náðu aftur upp forskoti og […]
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu

Mikil uppbygging húsnæðis hefur verið í gangi í Eyjum síðustu ár og er enn. Núna eru 84 íbúðir í bygginu, um 150 samþykktar eða í undirbúningi. Á árinu 2025 kláruðust 18 íbúðir. Stærsta byggingarsvæðið sem nú er Malavöllurinn, vettvangur mikilla átaka og sigra í fótbolta á síðustu öld. „Það er mjög mjög spennandi svæði og […]
ÍBV sækir KA heim í dag

Í dag klukkan 14:45 mætir ÍBV liði KA í 19. umferð Olís deild karla. Leikið verður í KA heimilinu á Akureyri. ÍBV situr í 5. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert eitt jafntefli og tapað sex. Markatalan er jákvæð um 17 mörk og Eyjamenn eru í harðri baráttu […]
Eyjamenn í eldlínunni

Eyjamennirnir Elmar Erlingsson og Arnór Viðarsson voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í handboltanum í gær. Elmar leikur með HSG Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni og Arnór leikur með HF Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni. Elmar skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn og gaf fimm stoðsendingar, þegar þeir gerðu jafntefli við Dormagen. Leikurinn endaði 33-33. Nordhorn er […]
Konudagurinn er í dag

Í dag er konudagurinn, en hann er fyrsti dagur mánaðarins góu í gamla norræna tímatalinu, sem er sunnudagurinn í 18. viku vetrar á milli 18. og 25. febrúar. Konudagurinn er rótgróin hefð í íslensku samfélagi. Á þessum degi er góu fagnað, en hún boðar aukna birtu og minnir okkur á að vorið er á næsta […]