ÍBV tapaði á Akureyri
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði naumlega með einu marki, 29-28, gegn KA í lokaleik 18. umferðar Olís deildar karla, á Akureyri í dag. 

Eyjamenn voru með yfirhöndina í byrjun leiks og náðu þriggja marka forystu, 4-7, eftir tíu mínútur. KA menn jöfnuðu leikinn eftir 20. mínútur í 10-10 en Eyjamenn náðu aftur upp forskoti og var staðan 13-15 í hálfleik. 

ÍBV komst fimm mörkum yfir strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks og var staðan 15-19. Þegar stundarfjórðungur var eftir minnkuðu KA menn muninn í 20-22. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en eftir að Eyjamenn voru komnir með fjögurra marka forystu, náðu KA menn að jafna leikinn í 24-24, þegar átta mínútur voru til leiksloka. Á lokakafla leiksins komust KA menn yfir í fyrsta skipti í leiknum og voru sterkari undir lokin. Staðan var 28-28 þegar þrjár mínútur voru eftir en KA menn skoruðu sigurmarkið og unnu að lokum 29-28, eftir misheppnaðar tilraunir Eyjamanna til að jafna leikinn.

KA menn komust með sigrinum upp fyrir ÍBV og eru í 5. sæti með 24 stig og Eyjamenn í því sjötta með 23 stig.

Einar Rafn Eiðsson, leikmaður KA, var markahæstur í leiknum með níu mörk en atkvæðamestir í liði Eyjamanna voru Andri Erlingsson og Hákon Daði Styrmisson með sjö mörk hvor. Petar Jokanovic varði tíu skot í marki ÍBV og Morgan Goði Garner eitt. Haukur Leó Magnússon, leikmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið á 47. mínútu. 

Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 7 mörk, Hákon Daði Styrmisson 7, Dagur Arnarsson 3, Daníel Þór Ingason 3, Elís Þór Aðalsteinsson 3, Sveinn José Rivera 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2. 

Næsti leikur Eyjamanna er gegn ÍR í Eyjum, fimmtudaginn 5. mars kl. 18:00.

 

 

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.