ÍBV tapaði á Akureyri

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði naumlega með einu marki, 29-28, gegn KA í lokaleik 18. umferðar Olís deildar karla, á Akureyri í dag.  Eyjamenn voru með yfirhöndina í byrjun leiks og náðu þriggja marka forystu, 4-7, eftir tíu mínútur. KA menn jöfnuðu leikinn eftir 20. mínútur í 10-10 en Eyjamenn náðu aftur upp forskoti og […]

Í dag eru 84 íbúðir í byggingu

20250321_141838

Mikil uppbygging húsnæðis hefur verið í gangi í Eyjum síðustu ár og er enn. Núna eru 84 íbúðir í bygginu, um 150 samþykktar eða í undirbúningi. Á árinu 2025 kláruðust 18 íbúðir. Stærsta byggingarsvæðið sem nú er Malavöllurinn, vettvangur mikilla átaka og sigra í fótbolta á síðustu öld. „Það er mjög mjög spennandi svæði og […]

ÍBV sækir KA heim í dag

Í dag klukkan 14:45 mætir ÍBV liði KA í 19. umferð Olís deild karla. Leikið verður í KA heimilinu á Akureyri. ÍBV situr í 5. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert eitt jafntefli og tapað sex. Markatalan er jákvæð um 17 mörk og Eyjamenn eru í harðri baráttu […]

Eyjamenn í eldlínunni

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamennirnir Elmar Erlingsson og Arnór Viðarsson voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í handboltanum í gær. Elmar leikur með HSG Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni og Arnór leikur með HF Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni. Elmar skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn og gaf fimm stoðsendingar, þegar þeir gerðu jafntefli við Dormagen. Leikurinn endaði 33-33. Nordhorn er […]

Konudagurinn er í dag

Í dag er konudagurinn, en hann er fyrsti dagur mánaðarins góu í gamla norræna tímatalinu, sem er sunnudagurinn í 18. viku vetrar á milli 18. og 25. febrúar. Konudagurinn er rótgróin hefð í íslensku samfélagi. Á þessum degi er góu fagnað, en hún boðar aukna birtu og minnir okkur á að vorið er á næsta […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.