Á rauðu ljósi í Reykjavík

Einn af uppáhalds útvarpsmönnunum mínum, Ívar Guðmundsson á Bylgjunni, var með athyglisverða pælingu í liðnum Sturluð staðreynd í vetur, en þar kom fram að samkvæmt útreikningum væri meðal biðtími höfuðborgarbúa á rauðu ljósi ca. 6 mánuðir á ári og ég fór að velta þessu fyrir mér í samhengi við ferð okkar hjóna snemma hausts til […]

Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn-Lingen þegar þeir töpuðu gegn Balingen-Weilstetten, 37-33, á heimavelli í þýsku B-deildinni í handbolta í dag. Nordhorn leiddi í hálfleik með þremur mörkum. Elmar skoraði fimm mörk úr sex skotum og auki gaf hann sjö stoðsendingar. Elmar er 21 árs leikstjórnandi en hann gekk í raðir Nordhorn […]

Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Svartfjallalandi

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði seinni leik sínum gegn Svartfjallalandi, í undankeppni EM kvenna í Podgorica í dag. Leiknum lauk með 33-24 sigri heimakvenna. Eyjamaðurinn Arnar Pétursson er þjálfari liðsins og þá voru Eyjakonurnar Sandra Erlingsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir á sínum stað í hópnum. Andrea Jacobsen var einnig í hópnum en hún […]

Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari

Taflfélag Vestmannaeyja varð í dag Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Titillinn kemur á einstaklega skemmtilegum tíma því félagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Eyjamenn fóru inn í lokaumferðina í harðri baráttu um efsta sætið eftir dramatískan sigur kvöldið áður. Í dag tókst liðinu síðan […]

Vestmannaeyjar – Grænt ljós

Íris bæjarstjóri undirritaði í vikunni og staðfesti deiluskipulag fyrir nýtt baðlón og hótel Lava Spring. Senn fer í gang uppbygging stærsta og metnaðarfyllsta ferðaþjónustuverkefni í Vestmannaeyjum frá upphafi. 1500fm baðlón 90 herbergja hótel 50 störf hið minnsta auk afleiddra starfa Sennilega framkvæmd upp á margra milljarða. Áhrif á efnahag og atvinnulíf samkvæmt skýrslu Alta. “Skipulagsáætlanirnar […]

Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag

skak_tafl

Taflfélag Vestmannaeyja vann dramatískan sigur með minnsta mögulega mun gegn Taflfélagi Reykjavíkur í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga í gærkvöldi og hefur þar með sett sig í sterka stöðu fyrir lokaumferð mótsins sem tefld er í dag. Viðureignin var afar spennandi þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu skákum kvöldsins. Sveitirnar skiptust á að hafa […]

Fólk en ekki flokka

Hildur Solv Ads

,,Ég vildi að ég gæti kosið fólk en ekki flokka” er setning sem ég hef fengið að heyra óteljandi oft á mínum pólitíska ferli. Margir eiga erfitt með að festa sig við ákveðna stjórnmálaflokka, sér í lagi í sveitarstjórnarmálum þar sem áherslumunurinn er oft ekki jafn áberandi eins og í landsmálunum. Bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum hefur […]

Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968

Vörubíl á leiðinni upp að  Gagnfræðaskólanum. Búið er að ryðja leiðina og sést snjódýptin vel. Upp á börmunum sjást nemendur Gagnfræðaskólans. Mynd sem minnir okkur á að snjórinn í síðustu viku er ekkert einsdæmi í Vestmannaeyjum.  Um þetta veður segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á bloggi sínu, Hungurdiskar og vitnar í Morgunblaðið sem segir frá miklu óveðri sem […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.