Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968
Mikli snjórinn í mars 1968.

Vörubíl á leiðinni upp að  Gagnfræðaskólanum. Búið er að ryðja leiðina og sést snjódýptin vel. Upp á börmunum sjást nemendur Gagnfræðaskólans. Mynd sem minnir okkur á að snjórinn í síðustu viku er ekkert einsdæmi í Vestmannaeyjum. 

Um þetta veður segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á bloggi sínu, Hungurdiskar og vitnar í Morgunblaðið sem segir frá miklu óveðri sem gekk yfir landið í mars 1968. Á Stórhöfða byrjuðu ósköpin með éljagangi þann 19. „Ekki var allt búið. Gríðarlega snjókomu gerði syðst á landinu. Að morgni 21. mældist snjódýpt á Stórhöfða 90 cm. Athugunarmaður á Stórhöfða (Óskar J. Sigurðsson) mældi einnig snjódýpt kl. 12 og 18 þann 21. mars. Hún var þá 100 cm. Úrkomumæling var erfið og í athugasemd kl. 12 segir að úrkomumælirinn sé kominn á kaf í snjó. Að morgni þess 21. hafði sólarhringsúrkoman mælst 60,1 mm á Stórhöfða. Frá kl.9 til kl. 18 mældust síðan 42 mm, en síðan var ekki hægt að mæla fyrr en kl. 18 tveimur dögum seinna. Þá voru 60,1 mm í mælinum,“ segir í samantekt Trausta frá 19. mars 2024, Hugsað til ársins 1968 sem var kalt og rysjótt. 

  

Nýjustu fréttir

Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.