ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús

„Síðast en ekki síst kynnum við poppbandið ÞESAL sem er ekki hefðbundin hljómsveit, heldur upplifun sem minnir á sýrutripp,“ segir í tilkynningu frá Hljómey, sem býður í þriðja sinn upp á einstaka tónlistarveislu í Vestmannaeyjum þar sem rjóminn af íslensku tónlistarfólki kemur fram. Flestir tónleikanna fara fram í heimahúsum. Hljómsveitin ÞESAL hefur tengingu við Vestmannaeyjar, […]
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu

Lúðrasveit Reykjavíkur blæs til veglegrar veislu í Hörpu laugardaginn 25. apríl. Með sveitinni koma fram fjórar af skærustu stjörnum íslenskrar dægurtónlistar: Mugison, Ragga Gísla, Una Torfa og Júníus Meyvant. Þau flytja úrval laga sinna við undirleik sveitarinnar undir stjórn Hannah O’Connor. Lúðrasveit Vestmannaeyja tekur einnig þátt í tónleikunum. Mikil og góð vinátta er á milli […]