ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús

„Ekki síðast og ekki síst kynnum við poppbandið ÞESAL sem er ekki hefðbundin hljómsveit, heldur upplifun sem minnir á sýrutripp,“ segir í tilkynningu frá Hljómey, sem býður í fjórðja sinn upp á einstaka tónlistarveislu í Vestmannaeyjum þar sem rjóminn af íslensku tónlistarfólki kemur fram. Flestir tónleikanna fara fram í heimahúsum.

Hljómsveitin ÞESAL hefur tengingu við Vestmannaeyjar, því ein aðalsprautan, Ómar Vídó, er ættaður frá Eyjum, sonur Sigga Vídó og Berglindar Ómarsdóttur.

„Það er teiknimyndageimveran Marens sem stýrir ferðinni með geimskipinu sínu og handteiknuðum „visuals“. Bandið sérhæfir sig í grípandi hljómheimum, húmorískum textasmíðum og rafmagnaðri sviðsorku. Bandið er skipað þremur „professional“ partýljónum sem eru ófeimin við að blanda saman tónlist, teiknimyndum, djammi og djúsi í eina risastóra kjarnorkupartýsprengju! ÞESAL lofar stemningu, geggjaðri danstónlist og besta djamm sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða,“ segir í kynningu Hljómeyjar.

Í hljómsveitinni eru þau Ómar Vídó, Kata Backmann og Guðmundur Elí. Hvert þeirra á sitt teiknimyndasjálf sem klæðist ávallt sama litnum: Ómar grænum, Kata rauðum og Guðmundur bláum. „Þetta er partur af okkar hljómsveitar-identity,“ segir Kata í viðtali við RÚV.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.