Dagskrá vegna 100 ára afmælis Vestmannaeyja heldur áfram og nú stendur yfir sýning á verkum Jóhanns Jónssonar, Jóa listó í Einarsstofu. Svo tekur við hver viðburðurinn af öðrum.
Næst er það Kvikmyndahátíð í byrjun maí en hápunkturinn er fimmta júlí. Þá mun afmælisnefnd í samstarfi við Goslokanefnd efna til mikillar veislu í tali og tónum. Verða í boði glæsileg skemmtiatriði fyrir fólk á öllum aldri.
Eins og undanfarin ár verða viðburðir í Safnahúsi og verða þeir kynntir jafnóðum. Þegar hefur verið haldin sýning á verkum Kjarvals í eigu Vestmannaeyjabæjar. Stórskemmtileg sýning á myndum eftir nemendur Grunnskólans sem skoðuðu lífið í Eyjum með sínum augum. Síðast var svo sýning á verkum eftir Eyjakonur. Fjölbreytt og skemmtileg sýning.
Af öðrum viðburðum má nefna hátíðarfund bæjarstjórnar 14. febrúar, bæjarstjórnarfund unga fólksins 15. febrúar og málstofu um stöðu Vestmannaeyja í nútíð og framtíð 17. febrúar. Allt mjög vel heppnaðir viðburðir.
Fimmtudaginn 21. mars var opnuð sýning á verkum Jóhanns Jónssonar, Jóa listó, sem varð sjötugur í febrúar á síðasta ári. Hugmyndina á Gunnar Júlíusson, myndlistarmaður og Eyjamaður sem fékk Kára Bjarnason, forstöðumann Safnahússins til liðs við sig. Jói sló til en fannst ekki við hæfi að efna til afmælis- og heiðurssýningar en það eru rúm 20 ár síðan hann hélt einkasýningu síðast. Sýningin var opin til 31. mars.
Ákveðið er að halda kvikmyndahátíð og verður hún tvískipt. Fyrri hlutinn verður dagana áttunda, níunda, tíunda, ellefta og tólfta maí og seinni á Safnahelgi í byrjun nóvember. Í hvort skipti verða sýndar valdar myndir fimm daga í röð í Bíóinu í Kviku. Hátíðin er haldin í góðu samstarfi við Svavar Vignisson, sem rekur Bíóið. Mikið er til af myndum, bæðí leiknum og heimildarmyndum sem tengjast Vestmannaeyjum. Ná þær allt aftur til þriðja áratugar síðustu aldar. Það verður vandi að velja og hafna en hægt er að lofa spennandi dagskrá þar sem margt kemur á óvart.
Aðalahátíðarhöldin verða svo fyrstu dagana í júlí og tengjast goslokahátíðinni. Annan og þriðja júlí verður dreift mjög myndarlegu afmælisblaði sem Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta ritstýrir. Þar verður farið yfir sögu Vestmannaeyja, stöðuna í dag og því sem framundan er. Sara Sjöfn lofar fjölbreyttu og skemmtilegu blaði og ljóst er að af nógu er að taka í 100 ára sögu Vestmannaeyja, bæði í myndum og texta. Blaðinu verður dreift í öll hús í Vestmannaeyjum.
Aðalhátíðin er svo föstudaginn fimmta júlí og er unnin í samstarfi við Goslokanefnd. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Sjálf 100 ára hátíðin fer fram á Skansinum sem heill heimur útaf fyrir sig.
Dagskráin er enn í mótun en á Skansinum verða flutt stutt ávörp og tónlist auk annarra atriða sem enn er verið að móta. Síðdegis verður móttaka bæjarstjórnar í Eldheimum þar sem forseti Íslands og forsætisráðherra verða á meðal gesta.
Um kvöldið, verða stórir tónleikar í Íþróttamiðstöðinni þar sem fjöldi landsþekktra listmanna koma fram með öflugri innkomu tónlistarfólks úr Eyjum. Tónleikarnir eru í boði bæjarstjórnar og er búist við mikilli aðsókn. Því er ákveðið að halda tvenna tónleika, kl. 18.00 og 21.00.
Um kvöldið og nóttina verður Skvísusundið miðpunktur mikillar tónlistarhátíðar þar sem allir geta tekið sungið með sínu lagi.
Lokatónn 100 ára afmælisársins verður svo á Safnahelgi í byrjun nóvember. Safnahelgi hefur fest sig í sessi sem ein allsherjar menningarveisla. Dagskrá er enn í mótun en þessa helgi verður seinni hluti kvikmyndahátíðar auk annarrar dagskrár.
Þetta er ekki tæmandi dagskrá afmælisársins og verða viðburðir kynntir með góðum fyrirvara. Af þessu má sjá að framundan er glæsileg afmælisdagskrá og er von á fjölda gesta.
Í afmælisnefnd eru Arnar Sigurmundsson, Hrefna Jónsdóttir, Stefán Ó. Jónasson og með þeim eru Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri hjá bænum og Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss og Ómar Garðarsson.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst