Mikilvægt að komast út úr borginni og byggja upp tengsl við fólk á þeirra heimavelli
�?orgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra flutti skrifstofu sína tímabundið á Suðurland dagana 22. – 24. maí og voru Vestmannaeyjar lokahnykkurinn á ferðalaginu. Með ráðherranum í för voru m.a. ráðuneytisstjóri og aðstoðarmenn ráðherra. Blaðamaður setti sig í samband við ráðherrann og ræddi stuttlega við hann um heimsóknina.
Hvaða kosti sjáið þið helst í því að flytja skrifstofuna út á land? �??Fyrir ráðherra sem fer með málaflokka sjávarútvegs- og landbúnaðarmála er gríðarlega mikilvægt að komast út úr borginni og byggja upp tengsl við fólk á þeirra heimavelli og sjá þannig rekstur fyrirtækja og sveitabæja með eigin augum. Samtölin eru undantekningalaust opinská og lærdómsrík, þar af leiðandi mikilvægt nesti fyrir okkur í ráðuneytinu. Margt af því fólki sem við hittum hefur starfað við landbúnað og sjávarútveg áratugum saman en aldrei stigið fæti inn í ráðuneytið í Reykjavík eða verið í miklum samskiptum við þá sem taka ákvarðanir um hagi þessi og framtíðarhorfur. �?r þessu þarf að bæta og flutningarnir eru liður í því. �?að er ekki hægt að ætlast til að þess að fólk sem er fast við vinnu og önnur skyldustörf þurfi alltaf að fara langan veg með tilheyrandi kostnaði og tímatapi til að koma ábendingum og sjónarmiðum sínum á framfæri við stjórnvöld,�?? sagði �?orgerður Katrín.
Aðspurð hvort flutningur skrifstofunnar út á land hafi orðið til þess að styrkja samband ráðuneytisins við landsbyggðina svaraði ráðherrann því játandi. �??Já, tvímælalaust. �?ll samskipti verða liðlegri og auðveldari þegar fólk hefur hist í eigin persónu og heimsótt þá staði sem um er að ræða. Eftir því sem ferðirnar verða fleiri og betri innsýn fæst í málefni hvers byggðarlags fyrir sig áttar maður sig líka hratt á því að landsbyggðirnar eru ekki einsleit heild heldur ólíkir staðir með ólíka hagsmuni. �?að er sérlega mikilvægt fyrir okkur í stjórnmálunum að átta sig á þessu því hver staður og hver sveit hefur sín sérkenni sem þarf að veita sérstaka athygli og það sem virkar á einum stað gerir það ekki endilega annars staðar á landinu.�??
Menn lágu ekki á skoðunum sínum
Hvaða staði heimsóttuð þið í Eyjum og hvernig viðtökur fenguð þið? �??Við byrjuðum daginn á að heimsækja Grím kokk sem sýndi okkur starfstöðvar sínar og sagði okkur frá þróun fyrirtækisins og framtíðarplönum. �?trúlegur kraftur og þrautseigja í þeim manni. Svo röltum við yfir í Vinnslustöðina og hittum þar fyrir Andreu Atladóttur sem sýndi okkur uppbygginguna sem nú stendur yfir og nýju uppsjávarvinnsluna. Við fengum líka túra frá Benoný �?órissyni og Gunnari Páli Hálfdanarsyni sem fræddu okkur um uppsjávar- og bolfiskssvið VSV. Toppmenn!
Fyrir hádegismat tókum við svo hús á �?tvegsbændafélaginu í Dala-Rafns húsinu á Flötum. �?að var hreinskiptinn en góður fundur þar sem menn og konur lágu ekki á skoðunum sínum. Eftir þann fund var kærkomið að fá sér hrefnusteik og þorsk á Tanganum þaðan sem við heimsóttum Ísfélag Vestmannaeyja. Ásamt því að skoða vinnsluna hjá þeim þá fórum við líka yfir ýmis mál tengd veiðigjöldum með Stefáni Friðrikssyni framkvæmdastjóra og �?rvari Guðna Arnarssyni fjármálastjóra. �?að var málefnalegur og góður fundur.
Að lokum fengum við kynningu á námi í haftengdri nýsköpun hjá Ásgeiri Jónssyni þar sem við fengum m.a. annars að smakka á afurðum Volcano Seafood eftir kynningu á því verkefni frá því flotta teymi.
Á leiðinni upp á flugvöll náðum við síðan fyrstu 20 mínútunum af borgarafundinum um samgöngumál í Höllinni.
Að vanda fengum við afar góðar viðtökur í Eyjum. Bæjarstjórinn eldaði fyrir okkur kvöldmat á þriðjudagskvöldið og gistingin á Hótel Vestmannaeyjum var frábær. Svo spillti ekki fyrir að ná að lauma sér í einn kaldan á The Brothers Brewery,�?? sagði �?orgerður Katrín að lokum.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.