ÍBV hefur samið við úganska landsliðsmarkvörðinn Abel Dhaira til þriggja ára. Abel þekkir vel til í Eyjum enda lék hann með ÍBV 2011 og 2012 og þótti skrautlegur en tók sig taki og átti mjög gott tímabil 2012. Abel er 26 ára gamall og hefur leikið 14 landsleiki fyrir �?ganda og og 37 leiki fyrir ÍBV. Hann fór frá ÍBV til Simba SC í Tanzaníu en snýr aftur þaðan til ÍBV.
�??Abel er gríðarlega sterkur í loftinu og sýndi oft og tíðum frábær tilþrif með ÍBV þann tíma sem hann lék með liðinu. Abel er væntanlegur til Vestmannaeyja fljótlega á nýju ári og mun því taka þátt í undirbúningstímabilinu af fullum krafti,�?? segir í tilkynningu frá knattspyrnuráði ÍBV.
Guðjón Orri Sigurjónsson er í dag markvörður ÍBV en Guðjón fékk tækifæri með aðalliðinu síðasta sumar og æfði undir handleiðslu David James. Flestir reiknuðu með að Guðjón tæki við sem aðalmarkvörður í sumar en nú er ljóst að samkeppnin verður hörð milli þeirra tveggja. Auk þess er efnilegur markvörður, hinn 19 ára gamli Halldór Páll Geirsson í laikmannahópi ÍBV.