Gangi áætlanir eftir flytur Húsasmiðjan af Garðaveginum í nýtt hús við Græðisbraut um helgina og opnar á nýjum stað eftir helgi, mánudaginn 17. september. Nýja húsið er ríflega tvöfalt stærra en það sem Húsasmiðjan er í og mun öll aðstaða batna til muna. Þá verður Blómaval einnig á nýja staðnum sem er nýjung í Vestmannaeyjum.