Ég hef verið einlægur aðdáandi Adele og hennar tónlistar síðan tónlistarferill hennar hófst. Það var því draumur minn að halda tónleika með lögunum hennar þar sem að ég segi einnig aðeins frá henni og hvernig hún samdi lögin. Einnig fannst mér röddin mín henta einstaklega vel í lögin hennar. Sá draumur varð að veruleika þegar ég hringdi eitt kvöld í Elías Fannar Stefnisson og ákváðum við að slá til og prufa þetta.