Heilsuræktartæki gefin til Hraunbúða

Stjórn Minningarsjóðs um hjónin Guðmund Eyjólfsson (1885-1924) og Áslaugu Eyjólfsdóttir (1880-1952) frá Miðbæ við Faxastíg í Vestmannaeyjum afhenti í dag  Dvalarheimilinu  Hraunbúðum sett af heilsuræktartækjum.  Eru það hlaupabretti, þrekhjól, stórt sjónvarp og tölva með snertiskjá ásamt áskrift af hjólaleiðum.  Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur og eiginmaður hennar  Birgir Þór Baldvinsson afhentu tækin fyrir hönd sjóðsins , en […]

Ekki tilefni til sérstakra aðgerða

Á fundi bæjarráðs í dag var tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem fjallað er um ósk Helgu Kristínar Kolbeins, bæjarfulltrúa, um úrskurð ráðuneytisins um hvort heimilt hafi verið að ráðast í úttekt á framkvæmdum við Fiskiðjuhúsið eftir að sú úttekt var samþykkt í bæjarráði með tveimur atkvæðum gegn einu. Snýr umrætt mál að því […]

Verði enn til taks fyrir samfélagið eins lengi og unnt er

Á síðasta bæjarráðsfundi komu Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins því á framfæri að mjög mikilvægt væri að gamli Herjólfur yrði til takst áfram í Vestmananeyjum og hvernig væri hægt að nýta hann áfram. Í bókun segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að Herjólfur verði áfram í þjónustu í samgöngum við Vestmannaeyjar eins lengi og unnt er en í samningum […]

Yndisleg tilfinning eftir loðnubömmerinn!

„Fiskurinn er þokkalegur en í honum er nokkur áta. Annars get ég varla lýst því hve notaleg tilfinning það er að hefja makrílvertíðina og sjá allt fara í gang eftir loðnubömmerinn!“ segir Benoný Þórisson, framleiðslustjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, á fyrsta vinnsludegi makríls og leynir hvergi kæti sinni. Huginn VE-55 kom með fyrsta makrílfarminn til Vestmannaeyja snemma […]

Goslokahátíð 2019 – Dagskrá

Nú er komin út formleg og fjölbreytt dagskrá Goslokahátíðar sem hefst með sýningum og tónleikum á fimmtudaginn kemur. Á föstudaginn fer svo m.a. fram 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjakaupstaðar og setning Goslokahátíðar á Skannsvæðinu. Klukkustund áður en afmælishátíðin fer fram mun Leikhópurinn Lotta sýna Litlu hafmeyjuna á Skanssvæðinu og Cirkus Flik Flak verður á svæðinu þannig […]

Afmælisrit í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarins

Þegar afmælisnefnd í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Vestmannaeyjabæjar hóf formlega störf 10. september 2018 biðu hennar fjölmörg verkefni. Áður höfðu verið teknar ákvarðanir á vettvangi bæjarstjórnar um nokkur atriði sem tengjast afmælinu. Meðal fyrstu verkefna var að taka ákvörðun um með hvaða hætti þessara merku tímamóta væri minnst á prenti. Niðurstaðan var að gefa […]

Stórtónleikar á föstudaginn

Á föstudaginn verða haldnir stórtónleikar í ÍÞróttamiðstöðunni í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar. Tónleikarnir eru hinir glæsilegustu þar sem fram koma Björgvin Halldórsson, Ragnhildur Gísladóttir, Júníus Meyvant, Sverrir Bergman, Halldór Gunnar Pálsson, Silja Elsabet Brynjarsdóttir, strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Karlakór Vestmannaeyja. Úrvals hljóðfæraleikarar undir stjórn Jóns Ólafssonar. Fjölbreyttur lagalisti þar sem Goslokalagið […]

Tóku forskot á Goslokahátíðina í Eldheimum

Að þessu sinni byrjaði metnaðarfull dagskrá Goslokahátíðar óvenju snemma. En á föstudaginn opnaði einn fremsti myndlistarmaður landsins Jón Óskar sýningu í Eldheimum á nokkrum af sínum mögnuðu verkum. Sýningin er liður í goslokahátíðinni og verður svo opin áfram út sumarið á afgreiðslutímum safnsins. Um kvöldið mætti svo hljómsveitin Hálft í hvoru og rifjaði upp gamla […]

Pedro Hipolito hættir sem þjálfari ÍBV

Knattspyrnuráð ÌBV og Pedro Hipolito hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi. ÍBV þakkar Pedro fyrir það það mikla og óeingjarna starf sem hann lagði á sig og òskar honum velfarnaðar ì framtíðinni. Fyrst um sinn mun Ian Jeffs taka yfir þjálfun meistaraflokks ÌBV, segir í tilkynnngu frá ÍBV. (meira…)

Einræðisleg skipun stjórnar Herjólfs ohf.  

Baráttan um bættar samgöngur hefur verið og mun líklega áfram verða eitt af megin verkefnum bæjastjórnar Vestmannaeyja enda eitt stærsta hagsmunamál Eyjamanna. Ferðaþjónustan, sjávarútvegurinn, verslun og þjónusta og íbúar eiga allt undir því að samgöngur séu í lagi allt árið um kring. Þó svo að stórum áföngum hafi verið náð þá er þessari baráttu hvergi […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.