George Baldock, enski miðjumaðurinn hjá ÍBV, varð fyrsti leikmaður Pepsi-deildar karla í fótbolta á þessu keppnistímabili til að fá fjögur gul spjöld og fara þar með í eins leiks bann. Baldock hefur verið í byrjunarliði Eyjamanna í öllum sex leikjum þeirra það sem af er tímabilinu og fengið gula spjaldið í fjórum þeirra.