Fyrirtækið Promens Dalvík hefur framleitt Sæplastker í 26 ár en framleiðsluna kannast margir Eyjamenn vel við, enda unnið með kerin bæði til lands og sjávar í tengslum við sjávarútveginn í Eyjum. Fyrirtækið afhenti á Fiskideginum mikla ker númer 500.000 og 500.001. Það síðara fékk Magnús Kristinsson, útgerðarmaður Bergs Hugins en útgerðin hefur um áraraðir notað Sæplastker í skipum sínum.