Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglu í vikunni vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina en þó var eitthvað um útköll á öldurhúsin vegna ýmissa mála sem upp vilja koma þegar bakkus er með í för. Lögreglu var í vikunni tilkynnt um að bifreið hafi verið tekin ófrjálsri hendi þar sem henni var lagt við verkstæði á Flötum.