Innleiðing á nýju flokkunarkerfi

Innleiðing á nýju flokkunarkerfi mun hefjast haustið 2023 í Vestmannaeyjum þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili. Þetta kemur fram í frétt á v ef Vestmannaeyjabæjar. Flokkunum fylgja samræmdar merkingar FENÚR sem munu gilda fyrir alla flokkun á Íslandi, allar tunnur fá því nýjar límmiðamerkingar. Um er að ræða stórt framfaraskref í umhverfis- […]
Fundu pysju á hálendi

Pysjueftirlitð fékk fregnir af pysju um daginn sem fannst dauð uppi á Biskupstungnaafrétti. Nánar til tekið við Sandvatn sem er um 80-90 km frá sjó. Var þetta eftir mikið sunnan hvassviðri sem gekk yfir landið fyrstu helgina í september. Greinilegt er að mikill vindur getur borið pysjur langt af leið. Þessi saga ætti að kenna […]
Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál

Byggðamál snerta flesta, ef ekki alla, málaflokka ríkisins og í stefnumótandi byggðaáætlun er lögð áhersla á samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Af 44 aðgerðum byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2026 eru 32 aðgerðir á ábyrgð annarra ráðuneyta en innviðaráðuneytis og tengjast málefnasviðum þeirra. Ein af þeim er aðgerð A.5 Fjarheilbrigðisþjónusta. Markmið með þeirri aðgerð er að aðgengi […]
Brælustopp

Bergur VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær og í dag landar Vestmannaey VE einnig fullfermi. Skipin munu bæði stoppa í landi meðal annars vegna bræluspár. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði í gær, í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar, að tveggja daga stopp væri framundan. „Það er norðaustan lurkur næstu daga og þá er eins […]
Dagskrá opnunarviðburðar Matey Seafood Festival

Opnunarviðburður Matey Seafood Festival verður haldin á morgunn miðvikudag frá kl: 17:00-18:30 í Eldheimum. Í boði verða tónlistaratriði, listasýning, smakk og léttar veitingar ásamt áhugaverðum erindum. Opnunar-viðburðurinn er fyrir alla og enginn aðgangseyrir. Á Matey.is getur þú pantað borð og lesið þig nánar til um hátíðina. Dagskrá: (meira…)
Toppliðin mætast í kvöld

Kvennalið ÍBV hefur farið vel af stað á þessu tímabili og unnið sína tvo fyrstu leiki. Annarsvegar KA/Þór fyrir norðan og svo Haukastúlkur á heimavelli. Liðið situr á toppi Olísdeildarinnar með fullt hús stiga ásamt Valsstúlkum. En þessi tvö lið mætast í toppslag á Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á handboltarás Símans. […]
KFS fallið eftir tap um helgina

KFS er fallið niður í 4. deild eftir tap gegn Víði um helgina. KFS þurfti að minnsta kosti jafntefli í leiknum til þess að halda sér í deildinni en leikurinn fór 3-0 Víði í vil. KFS endaði í 11 sæti með 21 stig eftir 22 leiki. Stigataflan eftir tímabilið: (meira…)
Glæsilegir matseðlar á Matey Seafood Festival

Matseðlarnir fyrir Matey Seafood Festival sem fram fer næstu helgi eru glæsilegir. Á öllum stöðunum verður boðið upp á fjögurra rétta seðil og kostar hann 9890 kr á mann. Einnig verður boðið upp á Matey kokteil á 2690 kr. Fiskurinn kemur frá okkar frábæru fiskframleiðendum og útgerðum og spretturnar úr gróðurhúsi Eyjanna, kemur fram í […]
Vinir í bata hefja göngu sína á ný

12 spora hópur Landakirkju, Vinir í bata hefja starf sitt á ný eftir sumarfrí nk. mánudag 18. september kl. 18:30 í betri stofu safnaðarheimilis Landakirkju. Fyrstu þrír fundirnir, þann 18. og 25. september og 2. október eru opnir kynningarfundir þar sem fundargestir fá innsýn inn í starfið. Eftir það hefst hin eiginlega spora vinna. Heitið […]
Niðurstaða í lok mánaðar

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarstjórnar í vikunni sem leið. Fram kom að bæjarstjórn fundaði í byrjun vikunnar með viðræðunefnd um stöðu viðræðna um nýjan þjónustusamning ríkisins og Vestmannaeyjabæjar um ferjusiglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar/Þorlákshafnar. Góður gangur er í viðræðunum og vonast er til að niðurstaða liggi fyrir í lok september. (meira…)