Pæjumóti ÍBV og TM lauk í dag þegar úrslitaleikir fóru fram á Hásteinsvellinum. Breiðablik var afar sigursælt á mótinu, varð Pæjumótsmeistari í A-, B- og C-liðum og í þriðja sæti í D-liðum. Þar varð Valur hins vegar meistari en sigurliðin má sjá hér að neðan. Mótið í heild sinni tókst afar vel upp en hægt er að sjá fjölmargar myndir frá mótinu hér að neðan.