Breyting á áætlun Herjólfs í Landeyjahöfn
Breyting verður gerð á ferðum Herjólfs í Landeyjahöfn í dag og á morgun. Í stað þess að brottför verði 11:30 frá Vestmannaeyjum, verður brottför 14:30. Skipið siglir síðan 16:00 frá Landeyjahöfn en þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs. Áætlun Herjólfs gengur því saman við tvær ferðir Strætó þessa daga, fyrstu og þriðjuferð. Breytingin er gerð vegna dýpis við Landeyjahöfn, djúpristu Herjólfs og sjávarfalla.
Áætlun Herjólfs í dag og á morgun verður því sem hér segir.
Miðvikudagur 20.11.2013
Brottför frá Vestmannaeyjum 08:30, 14:30 og 17:30
Bröttför frá Landeyjahöfn 10:00, 16:00 og 19:00
Fimmtudagur 21.11.2013
Brottför frá Vestmannaeyjum 08:30, 14:30, 17:30 og 20:30
Bröttför frá Landeyjahöfn 10:00, 16:00, 19:00 og 21:30
Fyrirliggjandi ölduspá er góð eins langt og hún er sýnd nú og verður unnið að dýpkun eins og aðstæður leyfa næstu daga.
Staðan núna:
�?lduspá:
Veðurspá:

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.