Í kjölfar netkönnunar um vetraráætlun Herjólfs dagana 11. til 14. október sl. hefur verið ákveðið að breyta áætluninni í samræmi við niðurstöður könnunarinnar. Ferðum verður fjölgað á föstudögum og sunnudögum en á móti verður ferðum fækkað á þriðjudögum og miðvikudögum. Frá og með föstudeginum 25. október verða því fimm ferðir föstudaga og sunnudaga en þrjár þriðjudaga og miðvikudaga. �?átttaka í könnuninni var mjög góð að mati Eimskips sem rekur skipið samkvæmt samningi við Vegagerðina.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, segir að góð þátttaka hafi komið skemmtilega á óvart. �??Könnunin var gerð á netinu, aðeins auglýst á vefsíðu okkar og á Facebook síðu Herjólfs og var aðeins opin fimm daga. Alls tóku 886 þátt í könnuninni og af þeim vilja 89,1% breyta áætluninni sem er í samræmi við það sem við höfðum heyrt hjá fólki,�?? sagði Gunnlaugur.
�??Reyndin er að fæstir ferðast með Herjólfi þriðjudaga og miðvikudaga en flestir föstudaga og sunnudaga. �?að var vilji mikils meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnuninni að flytja kvöldferðir í miðri viku yfir á miðdagsferðir á föstudögum og sunnudögum. �??
Könnunin var gerð í samráði við Vegagerðina og Vestmannaeyjabæ sem hafa samþykkt breytinguna. �??Við verðum að vinna innan þess ramma sem okkur er settur hvað ferðafjölda varðar. Við erum gríðarlega ánægð með þátttökuna og niðurstöðuna. �?að er líka gaman að geta brugðist við óskum fólks með þessum hætti.�??
Gunnlaugur vill vekja athygli á að Strætó ekur þrjár ferðir á dag til Landeyjahafnar alla daga vikunnar. �??Sú áætlun gengur alveg saman við þessa nýju áætlun okkar.�??
Hann segir að fullt af öðrum góðum ábendingum hafi komið fram í könnuninni. �??Meðal annars um bætta aðstöðu fyrir gæludýr sem við erum þegar farin að vinna að. Einnig voru óskir um aukaferðir í kringum tónleika og aðra stærri viðburði sem freista fólks. Reynslan af þessari könnun hvetur okkur til að leita aftur til fólks í framtíðinni.�??
Heilt yfir segir Gunnlaugur að siglingar hafi gengið vel í Landeyjahöfn frá því þær hófust 19. mars í vor. �??Við höfum siglt eina ferð eða fleiri í 208 daga síðan þá sem eru fleiri dagar en á sama tímabili 2012. Í fyrra sigldi Herjólfur til 24. nóvember en þann dag lentum við í óhappi í Landeyjahöfn. �?á tók Baldur við og sigldi til 9. desember þegar Herjólfur kom úr viðgerð. �?g er bjartsýnn á haustið og kannski átt þú eftir að spyrja mig um miðjan janúar; -Hvað lengi heldur þú að Landeyjahöfn verði opin?,�?? sagði Gunnlaugur.
�??�?að er ýmislegt sem bendir til þess að við getum nýtt Landeyjahöfn lengur en verið hefur undanfarin ár. Sandburður hefur verið að minnka ár frá ári eins og gert var ráð fyrir í upphafi sem er ánægjulegt. Einnig hefur tilkoma straummælisins í Landeyjahöfn hjálpað skipstjórum við ákvarðanatökuna hvað siglingar varðar. Auðvitað er það hundfúlt fyrir alla þegar ferðir falla niður sérstaklega ef það gerist heilan dag. Ekki síst yfir hásumarið en ég held að mjög fáir vilji fara í gömlu áætlunina sem við vorum í áður en Landeyjahöfn kom til sögunnar.�??