Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum með að ekki er sjúkraflugvél staðsett í Eyjum. Í neyðartilvikum er send flugvél frá Akureyri. það hefur þegar gerst nokkrum sinnum. Fréttir ræddu við bæjarfulltrúana Páleyju Borgþórsdóttur, Sjálfstæðisflokki og Pál Scheving, Vestmannaeyjlista og eru þau sammála um að ástandið sé óviðunandi.