Áhafnir fjölmargra skipa úr Vestmannaeyjum munu sigla skipum útgerða úr Eyjum til Reykjavíkur og taka þátt í samstöðufundi sem haldinn verður á Austurvelli á morgun. Suðurey, skip Ísfélags Vestmannaeyja, mun sigla til Reykjavíkur, en fyrir á útgerðarfélagið þrjú skip í Reykjavík að sögn útgerðarstjóra.