Fjöldi manns lagði leið sína á Nausthamarsbryggju í gærkvöldi þar sem áhöfnin á Húna II blés til tónleika á hringferð sinni um landið. Fullyrða tónleikahaldarar að um 800 manns hafi verið á bryggjunni þegar mest var og stemmningin var furðulega góð, miðað við að tónleikarnir hafi verið haldnir á mánudegi eftir Goslokahátíð.