Heimir þjálfari fyrri umferðar Íslandsmótsins

Karlalið ÍBV situr í öðru sæti Pepsídeildarinnar í knattspyrnu þegar Íslandsmótið er hálfnað en fyrir mótið áttu fæstir von á því að liðið yrði í þessari stöðu. Knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net gerir upp fyrri umferðina í dag en vefurinn valdi Heimi Hallgrímsson, þjálfara ÍBV þjálfara fyrri umferðarinnar. Þá var enski bakvörðurinn James Hurst valinn besti ungi leikmaðurinn […]
�?g kvíði fyrir �?jóðhátíð á hverju einasta ári!

Tilhlökkun vegna Þjóðhátíðar í Eyjum eykst dag frá degi – nema á lögreglustöðinni. Þar taka menn ekki gleði sína aftur fyrr en að lokinni Þjóðhátíð. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, segist vonast til þess að gestir á Þjóðhátíð í Eyjum í ár verði ekki fleiri en 16.000 en í fyrra voru þeir um 14.000. Hann […]
Hækkuðu laun sín um fimmtung

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallaði um þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. „Vægi nefndarsæta skal haldast óbreytt frá því sem verið hefur. Fyrir grunneiningu skal greitt 7229 kr.,“ segir í fundargerð. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ var grunneining áður 6083 krónur sem þýðir 20 prósenta hækkun. (meira…)
�?kumenn sýnið aðgát

Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar vinna nú hörðum höndum að viðhaldi og fegrun umhverfisins. Meðal þeirra verka sem til falla á hverju sumri er að mála línur og gangbrautir á götur bæjarins en þessa dagana vinna tveir hópar við að mála línurnar. Á hverjum stað er helmingi götunnar lokað með keilum, bæði á meðan málað er og á […]
Uppselt í 22 vélar á mánudag hjá Flugfélagi Íslands

Bókanir ganga mjög vel í flug og skip fyrir þessa Þjóðhátíð. Nýjustu fréttir af bókunum í flug koma ekki á óvart í kjölfar mikilla bókanna hjá Herjólfi. Fimmtudaginn 29. júlí eru 6 vélar á áætlun og uppselt í 3. Föstudaginn 30. júlí eru svo 11 vélar á teikniborðinu og uppselt í 9. (meira…)
Okkar tilfinning að fíkniefnaneytendur séu orðnir yngri

Fíkniefnavandinn hefur farið vaxandi á Íslandi undanfarin ár og eru Vestmannaeyjar þar engin undantekning. Illa virðist ganga að ná stjórn á þessum vanda en að öllu jöfnu ætti að vera hægt að stýra honum, eða halda honum í lágmarki, með virkum forvörnum og fræðslu til ungmenna. En er eitthvað annað til ráða og hvað getum […]
�?ruggir sigrar hjá ÍBV og KFS

Kvennalið ÍBV vann sannfærandi sigur á Sindra austur á Hornafirði í gær en liðin leika í B-riðli 1. deildar. Lokatölur urðu 1:6 en staðan í hálfleik var 0:3. Eyjastúlkur komust í 0:5 áður en heimastúlkur náðu að svara á 87. mínútu en ÍBV tókst svo að skora síðasta mark leiksins. Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði þrennu […]
Hallgrímur Júlíusson sigurvegari í meistaraflokki og öldungaflokki

Þeir verða sjálfsagt hissa þeir sem renna yfir verðlaunahafa Vestmannaeyjamótsins í golfi en eins og áður hefur komið fram, varð hinn 16 ára gamli Hallgrímur Júlíusson meistari í fyrsta sinn. En þegar rennt er yfir listann yfir verðlaunahafa mótsins kemur í ljós að Hallgrímur Júlíusson vann einnig í öldungaflokki. Hvernig stendur á því? Jú í […]
Hallgrímur Vestmannaeyjameistari í golfi

Hallgrímur Júlíusson var nú fyrir stundu krýndur Vestmannaeyjameistari í golfi en Hallgrímur er aðeins 16 ára gamall og eftir því sem næst verður komist, er hann yngsti klúbbmeistari GV frá upphafi. Hallgrímur endaði með sex högga forystu á vallarstjórann margreynda Örlyg Helga Grímsson en Hallgrímur lék hringina fjóra á 74, 72, 70 og 70, sem […]
Verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deildinni

Tryggvi Guðmundson ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu í land eftir 2-1 sigur ÍBV á fimmtudaginn. Hann hætti þó snarlega við þar sem Keflvíkingar voru brjálaðir út í Tryggva. Ástæðan er sú að hann var viðriðinn atvik sem lauk með því að Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald áður en ÍBV tryggði sér sigur. (meira…)