Heimir með ÍBV næstu tvö árin

Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár. Heimir tók við liðinu síðla sumars 2006 af Guðlaugi Baldurssyni og hefur stýrt því síðan. Hann hefur stjórnað liðinu í 51 deildarleik, 32 sigrar, 8 jafntefli og 11 tapleikir. Árangur liðsins var frábær á síðasta sumri þar sem liðið sigraði 1.deildina með […]
Aflaverðmæti 99 milljarðar 2008

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 og jókst um tæpa 19 milljarða frá árinu áður þegar aflaverðmætið var 80 milljarðar. Aukningin nemur 23,5% á milli ára. (meira…)
Hanna Birna kosin ritari Frjálslyndra

Landsþing Frjálslynda flokksins fór fram í gær á Stykkishólmi en meðal annars var kosið í stjórn flokksins. Hanna Birna Jóhannsdóttir var kosin ritari flokksins en Hanna Birna, sem er búsett í Vestmannaeyjum, var í öðru sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í sveitastjórnakosningum í Vestmannaeyjum og auk þess í þriðja sæti á lista Frjálslynda flokksins […]
Addi Johnsen umvafinn kvenfólki

Lokatölur úr prófkjöri Sjálfstæðismanna eru komnar. Ragnheiður Elín Árnadóttir sigraði með nokkrum yfirburðum, fékk 2192 atkvæði í fyrsta sætið. Árni Johnsen fékk 1576 atkvæði í 2. sætið. Unnur Brá Konráðsdóttir hlaut 1882 atkvæði í 3. sætið og Íris Róbertsdóttir fékk 1812 atkvæði í 4. sætið. (meira…)
Fyrirhafnarlítið hjá ÍBV gegn Fjölni

Karlalið ÍBV átti ekki í vandræðum með lánlausa Fjölnismenn í 1. deildinni í gær en liðin áttust við í Eyjum. Lokatölur urðu 46:25 eftir að staðan var 20:16 í hálfleik. ÍBV teflir fram mjög ungu liði en síðustu mínúturnar var liðið þó sérstaklega ungt, þrír strákar úr fjórða flokki og aðeins tveir á meistaraflokksaldri. (meira…)
Árni kominn í annað sætið

Árni Johnsen, alþingismaður er kominn í annað sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi þegar talin hafa verið 3.200 atkvæði af um það bil 4.000. Árni var í 4. sæti eftir að fyrstu tölur voru birtar. Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður heldur enn efsta sætinu en Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri er fallin í 3. sætið. (meira…)
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi voru kynntar af kjörstjórn nú fyrir stundu. í fyrsta sæti er Ragnheiður Elín Árnadóttir, þegar talin hafa verið 1.400 atkvæði af um það bil 4.000. Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur hlotið 715 atkvæði í 1. sæti. Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti með 503 atkvæði í 1.-2. sæti. Kjartan Ólafsson er […]
Knattspyrnuráðið fullmannað

Þá er knattspyrnuráðið fullmannað. Svenni Þórðar er formaður og með honum hér í Eyjum eru Örn Hilmis, Grétar Ómars, Sigurbergur Ármanns, fjármálastjóri og Bergur Kristins. Í Rvk starfa þeir Gestur Magg, Þorsteinn tengdarsonur Halla Steina og Jóhann Sveinn Sveins. Bara flottur hópur. (meira…)
Atkvæðaseðlar úr Eyjum lagðir af stað til Selfoss

Rétt fyrir klukkan hálf sjö, lagði flugvél á vegum Flugfélags Vestmannaeyja af stað með atkvæðaseðlana úr Eyjum úr prófkjöri Sjálfstæðismanna. Flogið var á Bakkaflugvöll og þaðan verður ekið með þá á Selfoss. Alls greiddu 840 kjósendur atkvæði á kjörstað. Utankjörfundaratkvæði munu vera um 60 talsins. Í prófkjöri fyrir síðustu alþingiskosningar voru heildaratkvæði úr Eyjum rétt […]
�?rslit í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ættu að liggja fyrir seint í kvöld

Ofsögum sagt er að ákveðið sé að fresta talningu atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Flugfært er sem stendur frá Vestmannaeyjum og munu atkvæðaseðlar þaðan verða sendir uppúr klukkan 18.00 þegar kjörstað verður lokað. Seint í kvöld ættu því úrslit að liggja fyrir. (meira…)