�?tgáfu Vaktarinnar breytt

Stjórn Eyjasýnar ehf. hefur ákveðið að gefa breytingar á útgáfu fyrirtækisins. Eyjasýn gefur út bæði Fréttir og Vakt­ina, auk þess að halda úti vefmiðlunum Eyja­fréttir.is og Sudurlandid.is. Vegna lægðar á auglýsingamarkaði hefur verið ákveðið að draga úr útgáfu Vaktar­innar þannig að blaðið komi út einu sinni í mánuði eða svo. (meira…)

Kvótakerfinu verður að breyta

Í fyrradag efndi ég til utandagskrárumræðu á Alþingi um endurúthlutun fiskveiðiheimilda. Tilefnið var ný könnun sem fyrirtækið MMR gerði í síðasta mánuði og kannaði vilja almennings til þess að stjórnvöld afturkalli fiskveiðiheimildir með einum eða öðrum hætti og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. Svörin voru ótrúlega skýr og á einn veg. Rúmlega 60% […]

Kosning hafin í opnu netprófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Kl. 6:00 í morgun hófst kosning í opnu netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjörfæmi, kosning stendur yfir til kl. 18:00 laugardaginn 7. mars 2009. Kosningarétt hafa allir sem eru á íbúaskrá í Suðurkjördæmi þann 1. mars og verða orðnir 18 ára þegar Alþingiskosningar fara fram þann 25. apríl. Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi eru einu frambjóðendurnir í kjördæminu […]

Ugginn ekki í lag fyrr en í september

Nú hefur viðgerð á veltiugga Herjólfs verið frestað fram í september en ugginn á skipinu bilaði um miðjan nóvember á síðasta ári. Haft var eftir Guð­mundi Pedersen í janúar að varahlutirnir yrðu tilbúnir í lok apríl en hann taldi að viðgerðin tæki þrjá til fjóra daga. (meira…)

�?gi Páli sagt upp hjá Ísfélaginu

Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. ákvað á fundi sínum í dag að segja upp Ægi Páli Friðbertssyni framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann þegar látið af störfum. Ástæða uppsagnarinnar er, að óbreyttu, tap félagsins af afleiðusamningum við íslenska banka. Telur stjórn félagsins að framkvæmdastjórinn hafi farið út fyrir heimildir sínar í störfum sínum. Stjórnin harmar að til […]

Atvinnulífið í gang nú þegar

Hjól atvinnulífsins eru undirstaða þess drifkraftar sem knýr íslenskt samfélag. Það verður að koma atvinnulífinu í gang nú þegar, uppbyggingarstarfið verður að hefjast strax, íslenskt samfélag hefur ekki efni á að bíða mikið lengur. Skammtímalausnir duga ekki til langframa, ekki þýðir að plástra heimilin endalaust með plástrum sem duga skammt gegn þeim vanda sem við […]

Prófkjör – Express

Prófkjör á ljóshraða í Suðurkjördæmi. Það líða ekki 3 vikur frá því að leikreglur eru settar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og þar til prófkjörið fer fram. Flestir frambjóðendur hafa tvær vikur til þess að kynna sig í öllu kjördæminu allan Reykjanesskagann, Suðurlandsundirlendið, Vestmannaeyjar og Hornafjörð. Á sama tíma þarf að hanna kynningarefni, skrifa greinar, […]

Rútufyllir hjá Árna Johnsen á Selfossi

Rútufyllir var hjá Árna Johnsen á rútufundi við Pylsuvagninn hjá Ölfusárbrú á Selfossi í kvöld. Þetta var einstæður fundarstaður í rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni og boðið upp á pylsur og kók sem Ingunn Guðmundsdóttir í Pylsuvagninum bar fram og fór vel í fundargesti. Snaggaraleg þjóðmála- og kjördæmisumræða fór fram með góðri þátttöku rútugesta. Fleiri myndir […]

Vestmannaeysk fiskiskip 42 talsins

Reykjavík er heimahöfn flestra fiskiskipa eða alls 88 í lok síðasta árs samkvæmt samantekt Hagtíðinda sem byggja á skrá Siglingamálastofnunar. Þar á eftir kemur Grindavík með 81 skip skráð. Í Reykjavík voru einnig flestir opnir fiskibátar með heimahöfn, alls 35, en 30 bátar áttu heimahöfn í Hafnarfirði. Flest vélskip áttu heimahöfn í Grindavík eða 66 […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.