Fiskiskipum fækkaði um 113 í fyrra

Í lok árs 2008 voru 1.529 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 113 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 769 og samanlögð stærð þeirra 86.390 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 65 á milli ára og dróst flotinn saman um 5.266 brúttótonn. Togarar voru alls 60 og fækkaði um fjóra frá árinu […]
Traustið endurheimt

Öllum ætti að vera ljóst að rof hefur orðið á milli stjórnvalda og almennings. Stjórnvöld njóta ekki trausts almennings. Það efnahagslega óveður, sem yfir okkur hefur gengið, hefur að stórum hluta skapað þetta traustsrof. Fólk vantreystir því sem stjórnvöld halda fram enda töluðu þau um að kerfið væri öruggt allt fram á síðasta dag. Upplifun […]
Eyjamenn, takið þátt í breytingunum

Ágætu Eyjamenn. Nú eru gerðar kröfur um breytingar í stjórnmálum á Íslandi. Það er lýst eftir fólki sem hefur víðtæka þekkingu og reynslu til að takast á við erfið verkefni framundan. Það þarf kjark og áræði til að vinna að stefnumótun og viðreisn hins nýja Íslands. Það þarf traust til að uppbyggingin megi takast sem […]
Fótboltalið ÍBV í upptökur?

Það gæti farið svo að karlalið ÍBV fari í upptökuver og syngi lagið Slor og skítur, eða Dúrí dara eins og margir kalla það, fyrir sumarið en lagið samdi Guðmundur Rúnar Lúðvíksson. Sú hefð hefur skapast síðustu ár hjá ÍBV liðinu að leikmenn syngja viðlagið í búningsklefanum eftir leiki, hinum liðunum til mikillar mæðu. (meira…)
�?ruggur sigur ÍBV í gær

Í gær lagði ÍBV KKF Þóri að velli í 2. deildinni í körfubolta en leikur liðanna fór fram í Eyjum. Lokatölur urðu 96:54 en staðan í hálfleik var 49:32 fyrir Eyjapeyja. Hinn ungi Kristján Tómasson fór á kostum og skoraði 29 stig. Eyjamenn eiga því enn möguleika á að komast í úrslitakeppni 2. deildar en […]
Stór verkefni og baráttumál framundan

Þau stórmál sem skipta miklu máli í meðferð Alþingis fyrir Vestmannaeyjar á næstu misserum og árum varðandi uppbyggingu á samgöngum og þjónustu eru smíði nýrrar ferju milli Eyja og Landeyjahafnar, uppbygging stórskipabryggju í Vestmannaeyjahöfn eða í tengslum við hana, uppbygging Skipalyftunnar svo að hún geti þjónað öllum Eyjaflotanum, vörn og sókn kvótans fyrir Vestmannaeyjar og […]
Elísa í þriðja sæti

Elísa Guðjónsdóttir, hin 19 ára gamla Eyjamær varð í kvöld í þriðja sæti í keppninni Ungfrú Reykjavík. Elísa hefur búið í höfuðborginni undanfarin tvö ár en hún stundar nú nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Annar nemandi úr sama skóla bar sigur úr býtum í keppninni, hin 22 ára gamla Magdalena Dubik. (meira…)
Endurreisn efnahagslífsins, aðalatriði eða aukaatriði?

Staða efnahagsmála varðar alla Íslendinga, öll fyrirtæki, heimili og einstaklinga. Verkefni stjórnvalda er að leggja fram lausnir er miði að því að endurreisa fjárhag fyrirtækja og heimila. Lækka þarf stýrivexti og taka á málefnum bankanna því án starfhæfra banka þrífst ekki kröftugt atvinnulíf. Þessi verkefni eru brýn og mega ekki bíða. (meira…)
Víkjumst ekki undan ábyrgð

Þangað til um daginn hafði Sjálfstæðisflokkurinn verið samfellt í ríkisstjórn í 18 ár – næstum allan þann tíma í stjórnarforystu. Á þessu skeiði urðu gríðarlegar framfarir á Íslandi, – lífskjör þjóðarinnar stórbötnuðu og velmegun jókst á öllum sviðum. (meira…)
Frambjóðendur Samfylkingarinnar á súpufundi í Alþýðuhúsinu á laugardag

Frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi bjóða Eyjamönnum í súpu og fjörugar umræður um stjórnmál í Alþýðuhúsínu laugardaginn 28. febrúar. Fundurinn hefst kl. 12 og er öllum opinn. Fundurinn er liður í fundaröð frambjóðendanna um kjördæmið. Kosning í prófkjörinu fer fram í gegnum netið dagana 5-7. mars, nánari upplýsingar má finna á www.samfylking.is. (meira…)