Lúðvík býður sig ekki fram

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í komandi kosningum til Alþingis. Lúðvík hefur setið á þingi í 14 ár en í tilkynningu frá Lúðvík segir hann eðlilega kröfu að breyting verði á skipan Alþingis. Tilkynninguna má lesa hér að neðan. (meira…)

Heildargjöld 191 þúsund krónur fyrir 220 fm hús

Talsvert hefur verið kvartað yfir hærri gjöldum Vestmannaeyjabæjar, sér í lagi fasteignagjöldum sem íbúar telja að hafi hækkað umtals­vert. Fasteignagjöld Vestmannaeyja­bæjar eru miðuð við sömu prósentu­tölu, 0,42% eins og undanfarin ár en Fasteignamat ríkisins hefur hins vegar hækkað mat á verði fasteigna og lóða. Heildar­reikn­ingur­inn með vatnsgjaldi fyrir um 200 fm hús er 190.862 kr. […]

Ábending var send til barna­verndarnefndar Vestmannaeyja

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 25 ára karlmann í tveggja ára fangelsi í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinni. Brotin gegn stúlkunni hófust þegar hún var tæplega eins árs gömul en hún er nú tæplega fjögurra ára gömul. DV fjallaði um málið á þriðjudag en maðurinn dvaldi ásamt barninu í Vest­mannaeyjum um tíma. (meira…)

Ragnheiður Elín Árnadóttir sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til forystu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óska eftir stuðningi í 1. sæti listans í prófkjöri sem fram fer 14. mars. Undanfarnar vikur hefur verið kallað eftir breytingum og endurnýjun í forystusveit flokksins í kjördæminu. Mikilvægt er að nýta þann kraft sem á að endurspeglast í opnum og […]

Hjörtur vill 5. sætið hjá Samfylkingunni

Hjörtur Guðbjartsson heiti ég og er 25 ára Reykjanesbæingur. Ég er fæddur og uppalinn í Innri-Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæjar þar sem ég bý nú með unnustu minni, Vilborgu Pétursdóttur félagsráðgjafanema. Ég er útskrifaður með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og nem nú stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að sinna stöðu framkvæmdastjóra hjá Lyfta.is í Reykjanesbæ. (meira…)

Georg Eiður sækist eftir öðru sæti hjá Frjálslyndum

Vegna fjölda áskoranna í öllu Suðurkjördæmi, þá hef ég ákveðið að taka áskorun um það að sækjast eftir öðru sæti hjá Frjálslynda flokkinum. Ég hef verið útgerðarmaður í Vestmannaeyjum í 22 ár og starfað við fiskveiðar og fiskvinnslu frá unga aldri. Ég er giftur Matthildi Maríu Eyvindsdóttur og ég á fjögur börn. (meira…)

Arndís sækist eftir 2-3 sæti

Arndís Soffía Sigurðardóttir sækist eftir 2-3 sæti í forvali vegna framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi alþingiskosningar. Arndís er 30 ára og býr að Smáratúni í Fljótshlíð ásamt Ívari Þormarssyni, matreiðslumanni og saman eiga þau tvö börn. Að Smáratúni reka þau ferðaþjónustu ásamt foreldrum Arndísar, Sigurði Eggertssyni og Guðnýju Geirsdóttur. (meira…)

Bjarni Hólm til Keflavíkur

Bjarni Hólm Aðalsteinsson skrifar í dag undir samning hjá úrvalsdeildarliði Keflavíkur í knattspyrnu. Bjarni hefur leikið með ÍBV síðan 2005 en var samningslaus. Hann var hins vegar með samningstilboð, bæði frá Keflavík og ÍBV en samkvæmt heimildum Eyjafrétta, bauð Keflavík einfaldlega betur. Bjarni hefur verið einn af sterkari leikmönnum liðsins og mikill sjónarsviptir af honum […]

Tribute tónleikar um Janis Joplin í Höllinni

Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í Höllinni Vestmannaeyjum laugardagskvöldið 28. febrúar næstkomandi. Lífslaupi söngkonunnar, sem lést fyrir aldur fram af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970, er gert skil í frábærri túlkun Bryndísar Ásmundsdóttur sem hefur farið á kostum í Íslensku Óperunni að undanförnu og er talin stórkostleg í túlkun sinn á […]

Gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari í Vestmannaeyjum gefur kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í fréttatilkynningu sem Íris sendi frá sér segir hún að nauðsynlegt sé fyrir flokkinn að endurnýja framboðslistann fyrir næstu Alþingiskosningar, ekki endilega vegna þess að núverandi þingmenn hafi staðið sig illa, heldur vegna þess að flokkurinn sé marinn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.