Fundur með samgönguráðherra í kvöld

Í kvöld, þriðjudag, verður opinn fundur með samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller í Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst klukkan 20.00 og verður haldinn í Alþýðuhúsinu en fundarefnið eru samgöngu- og sveitastjórnarmál. (meira…)

Um 60 milljónir í ferðastyrk

Síðar í þessum mánuði verður úthlutað öðru sinni úr Ferðasjóði íþróttafélaga, en fyrst var úthlutað úr honum í fyrra. Það er ríkissjóður sem greiðir í þennan sjóð og í fyrra var 30 milljónum króna úthlutað en í ár verða það tæpar 60 milljónir. Umsóknir í sjóðinn í fyrra námu ríflega 200 milljónum og sótt er […]

Leyfir takmarkaðar loðnuveiðar í rannsóknarskyni

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur nú ákveðið að heimila takmarkaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni. Um er að ræða 15.000 tonna kvóta. Í reglugerðinni er kveðið á um að stjórn og skipulag veiðanna skuli framkvæmt undir stjórn og í nánu samstarfi við Hafrannsóknastofnunina. Fram hefur komið að útgerðarmenn og skipstjórar loðnuskipanna eru vongóðir […]

Einfaldasta hagfræði í heimi

Þetta er algjörlega ofvaxið skilningi venjulegs fólks. Hvenær í ósköpunum ætlar þessi þjóð að vakna upp af draumsvefninum ? Þetta hús er táknmynd gróðærisins og þess tíma þegar menn misstu algerlega áttir í hagstjórninni í okkar blessaða landi. (meira…)

Látum verkin tala

Ef borin eru saman síðasta heila ár Sjálfstæðisflokksins í samgöngu­ráðuneytinu, 2006, og fyrsta heila ár Samfylkingarinnar í sama ráðu­neyti, 2008, má sjá að framlög til almenningssamgangna hafa nánast tvöfaldast. Árið 2006 fóru um 303 milljónir í að styrkja flug og siglingar milli lands og Eyja en á árinu 2008 voru það um 590 milljónir. Með […]

Skóladagvistun og hádegisverður grunnskólabarna ódýrast í Eyjum

Vestmannaeyjabær býður upp á ódýrustu þjónustu við skólabörn á landinu þegar kemur að skóladagvistun og hádegisverði grunnskólabarna. Alþýðusamband Íslands stóð fyrir samanburði á verði í báðum tilvikum en samanburður getur verið flókinn þar sem allskonar systkinaafsættir eru í gangi og mismunandi hvað innifalið er í verði. Fyrir eitt barn greiða foreldrar í Vestmannaeyjabæ minnst á […]

Bannað að bera áfengi út og inn á staði með vínveitingaleyfi

Lögreglan hafði í ýmis horn að líta um helgina og í vikunni sem leið. Afskipti voru höfð af manni sem kom út af einum af veitingastöðum bæjarins með poka sem í var áfengur bjór. Viðurkenndi viðkomandi að hafa keypt bjórinn inni á staðnum, en samkvæmt áfengislögum er óheimilt að bera áfengi út og inn á […]

�?að er verk að vinna

Krafa um endurnýjun og uppstokkun í stjórnmálaflokkum lands­ins er hávær eftir efnahagshrunið. Kjósendur krefjast breytinga og hávær krafa er um að nýtt fólk verði valið til starfa á næsta alþingi Íslendinga. Stjórnmálaflokkarnir verða að bregðast við þessu kalli og nú þegar er ljóst að þessi háværa krafa kjósenda er farin að hafa áhrif. (meira…)

Að minnsta kosti 13 skip við gulldepluveiðar

Fjölveiðiskipin eru aftur byrjuð gulldepluveiðar suður af landinu eftir brælu í gær. Að minnsta kosti þrettán skip eru nú á Grindavíkurdýpi og fara brátt að berast aflatölur. Sú nýbreytni er við þessar veiðar að nú meta sjómenn aflann í rúmmetrum, fremur en tonnum, eins og vaninn hefur verið. (meira…)

Fjármál Lúðvíks ekki ástæðan

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um Lúðvík Berginsson alþingismann og formann þingflokks Samfylkingarinnar, í dag sunnudag. Þar hafnar Jóhanna því að fjármál Lúðvíks hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í minnihlutastjórn Jóhönnu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.