VG stærri en Sjálfstæðisflokkurinn

Vinstri græn mælast með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Vinstri græn hafa aldrei mælst með svo mikið fylgi í Gallupkönnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mælst minna í 15 ár. 27% segjast myndu kjósa Vinstri hreyfinguna grænt framboð yrði gengið til kosninga nú en 26% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn. (meira…)
Skemmdarverk á þjónustustöð N1 á Hvolsvelli

Hópur ungmenna var staðinn að verki við að vinna skemmdarverk á þjónustustöð N1 á Hvolsvelli aðfaranótt sunnudags en þar skemmtu þau sér við að brjóta ljósaskylti stöðvarinnar með stórri kylfu áður en þau voru stöðvuð af lögreglu. Engar vitrænar skýringar fengust á þessu uppátæki aðrar en skemmdarfýsnin ein. (meira…)
Mjög fjölmennur fundur á Selfossi í kvöld

Mikið fjölmenni var á opnum stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs á Selfossi í kvöld með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Árborg. Steingrímur flutti yfirgripsmikla ræðu um stöðu þjóðfélagsmála á Íslandi nú um stundir undir yfirskriftinni Fortíð – nútíð – framtíð” en Jón ræddi bæjarmál í þessari stöðu. Á […]
Góð aflabrögð, þegar gefur

Aflabrögð hjá trillum og togskipum hafa verið góð að undanförnu þegar gefið hefur, en veður hefur sett nokkuð strik í reikninginn. Þá hefur verð á Fiskmarkaði Vestmannaeyja verið gott. (meira…)
Grábölvað að málið skuli sitja fast í kerfinu vegna einhverra hugsanlegra umvandana frá Brussel.

Málefni Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum situr fast í kerfinu, vegna einhverra hugsanlegra umvandana frá Brussel, að sögn Elliða Vignissonar bæjarstjóra, en bærinn er tilbúinn með áætlun og fjármuni til verksins. Nú verði að fást svar af eða á frá samgönguráðherra. (meira…)
�?Fjarskanistanfarar�? – fyrirlestrar

Egill Bjarnason, blaðamaður á Sunnlenska fréttablaðinu og Yousef Ingi Tamimi halda fyrirlestra í Sunnlenska bókakaffinu í kvöld, fimmtudag 30. október kl. 20.30. Egill fjallar um lífið í Afganistan, Pakistan og Íran í máli og myndum en hann ferðaðist um löndin í fjóra mánuði fyrr á þessu ári. Yousef segir frá ástandinu í hertekinni Palestínu og […]
Fortíð- Nútíð- Framtíð

Opinn stjórnmálafundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Árborg með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Sveitarfélagunu Árborg verður á Hótel Selfoss í kvöld fimmtudaginn 30. október kl. 20.00 Dagskrá: (meira…)
Síld í Ísfélaginu

Júpíter ÞH kom til hafnar í Vestmannaeyjum um tvöleytið á sunnudag með um 850 tonn af Íslandssíld sem veiddist í Breiðafirðinum. Síldin fer að langmestu leyti til vinnslu í frystihúsi félagsins í Eyjum. (meira…)
Núverandi Herjólfur notaður áfram

Útlit er fyrir að nota verði núverandi Herjólf til bráðabirgða, þegar siglingar hefjast milli nýrrar Landeyjahafnar og Vestmannaeyja eftir tæp tvö ár. Búast má við að frátafir verði tvöfalt meiri en þegar nýja ferjan kemur. (meira…)
Breskir fisksalar tryggðu gjaldeyrinn

Breskir fisksalar á Humbersvæðinu gengu í að koma gjaldeyrisfærslum til Íslands í lag. Tilgangur þeirra var að tryggja áframhaldandi fiskútflutning frá Íslandi. Gjaldeyrisstreymi að og frá Íslandi hefur verið allt að því alstíflað undanfarnar vikur í kjölfar bankahrunsins. (meira…)