Hermann kom ekkert við sögu hjá Portsmouth

Hermann Hreiðarsson sat á varamannabekknum hjá stjóralausu liði Portsmouth allan tímann í kvöld þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Fulham á heimavelli sínum, Fratton Park, í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. (meira…)

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri 156 ára

Barnaskólinn á Eyrarbakka átti afmæli í gær en hann var stofnaður 25. október 1852 og er því orðinn 156 ára. Skólahúsið var byggt fyrir samskotafé almennings í héraðinu. Forgöngu fyrir þessari skólastofnun höfðu þeir sr. Páll Ingimundarson í Gaulverjabæ, Guðmundur Thorgrímsson verslunarstjóri á Eyrarbakka og Þorleifur Kolbeinsson á Háeyri sem þá var hreppstjóri Stokkseyrarhrepps. (meira…)

Sæt hefnd í dag

Eyjamenn komu svo sannarlega fram hefndum eftir ófarirnar í gær þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli gegn ÍG frá Grindavík 68:81. Leikmenn ÍBV mættu mjög ákveðnir til leiks í dag, tóku strax öll völd á vellinum og unnu að lokum 125:87 eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 61:35. (meira…)

Ullarverð til bænda hækkar um 24%

Ákveðið hefur verið að ullaverð til bænda hækki um 24 %. frá því í fyrra. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda, segir bændur séu nokkuð ánægðir með þetta verð. Hækkunin sé alla vega meiri en á dilkakjöti og eins og nú árar geta menn ekki annað en verið ánægðir með þessa hækkun. (meira…)

Andlit Annþórs verður á húsi Listasafns Reykjavíkur

Andliti handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar verður varpað á hús Listasafns Reykjavíkur. Annþór er ásamt fleirum þáttakandi í myndlistarsýningunni „Allir gera sem þeir geta sem sýnd hefur verið í Listasafninu undanfarnar vikur. Listamennirnir á bakvið sýningunnar heita Ólafur Ólafson og Líbía Castro. “ (meira…)

ÍG hafði betur í fyrri leiknum

ÍBV tók í kvöld á móti ÍG úr Grindavík í A-riðli 2. deildar en leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Bæði lið höfðu unnið fyrsta leik sinn og því búist við hörku rimmu. Svo fór þó ekki en það voru gestirnir sem höfðu betur og lokatölur urðu 68:81. Liðin mætast að nýju í Eyjum á morgun […]

Dragnótarafli í í október

Jón á Hofi ÁR frá Þorlákshöfn er kominn upp í annað sætið og Hásteinn ÁR frá Stokkseyri er í fimmta. Aldan ÍS er komin í slaginn með stóru bátunum. og er afli bátsins ansi góður. Í síðustu 6 ferðum er Aldan ÍS búin að fá tæp 48 tonn. Grímsey ST er líka komin inn á […]

�?ður til kvenna

Í öllu andstreyminu sem nú skellur á Íslendingum er gott að fá eitthvað jákvætt og fallegt. – Sagt er að ef konur hefðu stjórnað fjármálum þjóðarinnar hefði ekki farið svo illa sem raunin er. – En þessar elskur geta nú verið svolítið grátgjarnar og þessi myndasýning sem hér er, fjallar um ástæður þess á fallegan […]

Hættulegt svæði vegna ágangs sjávar við Urðarvita

Austur á Nýja Hrauni hefur sjórinn brotið undan landinu við Urðarvita. Skapast hefur talsverð hætta á svæðinu enda hafa er erfitt að sjá hættuna sem jafnvel liggur undir vikri. Þannig hafa borist fréttir af því að einstaklingur hafi einfaldlega misst landið undan sér og sökk viðkomandi niður að mitti. Sjórinn brýtur bergið undan landinu og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.