Tvö ár síðan skipalyftan hrundi

Í dag, 17. október eru liðin tvö ár síðan upptökumannvirki Skipalyftunnar í Vestmannaeyjahöfn hrundi en á lyftunni var skipið Gandí VE og stóð skipið upp á endann eftir að lyftan brotnaði. Sex menn sem á lyftunni voru féllu í sjóinn og slösuðust tveir, þar af annar nokkuð alvarlega. Skipið skemmdist nokkuð en upptökubúnaðurinn, skipalyftan sjálf, […]
Vinnudagur hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja

Á morgun, laugardaginn 18. október verður hinn árlegi vinnudagur Golfklúbbs Vestmannaeyja. Þá koma félagsmenn saman og búa völlinn undir veturinn. Margar hendur vinna létt verk og skorar stjórn klúbbsins á félagsmenn að fjölmenna. Byrjað verður 9.30. (meira…)
Bakkabróðir byggir með þyrlu
Bakkabróðirinn Ágúst Guðmundsson fer nýjar leiðir við byggingu 250 milljóna króna sumarhúss við Þingvallavatn. Sumarhúsið er á besta stað inni í sjálfum þjóðgarðinum en Ágúst hefur meðal annars notað þyrlu til að flytja steypu að grunni hússins. Undanfarið hefur Ágúst þó látið bera minna á framkvæmdum og í stað þyrlunnar eru komnir verkamenn á sérstökum […]
Alþjóðleg ráðstefna um Tyrkjaránið hefst í dag

Um helgina heldur Sögusetur – 1627, áhugafélag fólks um sögu Tyrkjaránsins, sína fyrstu alþjóðlegu ráðstefnu í Vestmannaeyjum. Við fangsefni ráðstefnunnar er annars vegar stofnun og starfræksla söguseturs í kringum Tyrkjaránið og hins vegar að skapa íslenskri þekkingu og rannsóknum á þessum merka atburði, stað í alþjóðlegri umræðu um sambærileg rannsóknarefni. Fyrirlestrarnir verða öllum opnir og […]
Aflaverðmæti 54 milljarðar fyrstu 7 mánuði ársins 2008

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 54 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2008 samanborið við 52,2 milljarða á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í morgun. Aflaverðmæti hefur aukist um um 1,8 milljarða eða 3,4% á milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 8,7 milljörðum miðað við 5,7 milljarða í júlí 2007. […]
Stórleikur í Eyjum á morgun

Strákarnir leika gegn Selfossi hér í Eyjum á laugardaginn kl 14:00. Má búast við hörkuleik eins og alltaf þegar þessi félög mætast. Selfoss er í efsta sæti með 6 stig, en ÍBV er með 4 stig. Að gefnu tilefni, þar sem mikið hefur verið rætt um rekstur íþróttafélaganna nú í kreppunni, langar okkur að koma […]
Talsvert tjón í eldsvoða
Eldur kviknaði í hjólhýsi sem stóð við einbýlishús við Baugsstaði, sem er rétt austan við Stokkseyri, með þeim afleiðingum að eldurinn náði að læsa sig í þakskegginu um kl. 19 í gærkvöldi. Talsvert tjón varð á húsinu vegna eldsins. Fólk sem var inni í húsinu varð vart við eldinn en náði að komast út af […]
Íslandsmót 15 ára og yngri í skák í Eyjum

Á morgun, laugardag fer fram Íslandsmótið í skák 15 ára og yngri hér í Eyjum. Mótið verður í Akóges salum og hefst kl. 9.00 um morguninn og reiknað er með því að það standi til kl. 17.00 með hádegishléi. Allir krakkar fæddir 1993 og yngri eru velkomnir, en efsti krakki í hverjum aldursflokki fær bikar […]
Aftur í tímann

Nú eru tveir vinir mínir og nokkrir kallar í sjónvarpinu búnir að segja mér grafalvarlegir að Íslendingar séu farnir á hausinn og muni hverfa 30 til 40 ár aftur í tímann. Þeir eru á svipinn eins og skólastjórinn þegar ég pissaði í nestisbrúsana hjá stelpunum. Það er því mjög líklegt að málið sé slæmt. Þegar […]
Mistökin áttu sér ekki stað í Eyjum

Vegna frétta síðustu daga af mistökum vegna hjartaþræðingar Elliða Vignissonar, í sjónvarpi og prent- og netmiðlum vill Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum koma eftirfarandi á framfæri:Mistökin með merkingu sýna voru gerð á Rannsóknastofu Landspítalans, sem ollu því að rangar upplýsingar bárust læknum hér við stofnunina. Allur framgangur starfsfólks við HSV var í samræmi við þær upplýsingar sem það […]