Senda skólahúsgögn til Afríku

Húsgögn Flóaskóla voru nýlega endurnýjuð og voru gömlu húsgögnin send til Afríku þar sem þau verða notuð í barnaskóla. Hugmyndin kom frá Guðmundi Jóni Sigurðssyni, umsjónarmanni fasteigna í Flóahreppi en Rauði krossinn sótti húsgögnin fyrr í vikunni. (meira…)

Er fylgjandi höfn í Bakkafjöru

Mér brá nú heldur betur í brún þegar ég skoðaði síðuna www.strondumekki.is. Þar sá ég nafn mitt og kennitölu. Ég vil að það komi skýrt fram að ég er fylgjandi höfn í Bakkafjöru og tel það mikla samgöngubót fyrir okkur Eyjamenn. Ég krefst þess því af þeim sem halda úti þessum undirskriftalista að fjarlægja nafn […]

Skúrir og skin við lestur Frétta

Þegar ég opnaði Fréttir eftir að þær duttu inn um lúguna hjá mér á miðvikudagskvöldið leist mér hreint ekkert á að lesa grein eftir framámanninn Magga Kristins, aðra vikuna í röð, þar sem hann finnur á­formum um Bakkafjöru­höfn, Land­eyjahöfn, allt til foráttu. Hins vegar lifnaði aftur yfir mér þegar Fréttum var flett aðeins lengra og […]

Samkeppniseftirlitið vill jafnræði í ríkisstyrki

Samkeppniseftirlitið hefur nú beint þeim tilmælum til samgönguráðherra að beita sér fyrir því að gæta jafnræðis milli flugfélaga við veitingu ríkisstyrkja. Þetta kemur fram í áliti eftirlitsins vegna ríkisstyrks til Flugfélag Íslands á flugleiðinni Vestmanna­eyjar-Reykjavík en FV taldi brotið á sér við veitingu styrksins. Þannig var ekki rætt við FV þegar kom að því að […]

Málþing um málefni innflytjenda á Suðurlandi

Velferðarmálanefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna til málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn, um málefni innflytjenda á Suðurlandi föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00. Skráning á málþingið er á sass@sudurland.is eða í síma 480 8200. (meira…)

Íbúar mótmæla lokun Kaupþings á Flúðum

Miklar áhyggjur eru hjá mönnum í Hrunamannahreppi vegna lokunar útibús Kaupþings á Flúðum og óvissu með póstþjónustu. „Það er gríðarleg eftirsjá í bankanum og fólk almennt mjög ósátt við framvindu málsins. “ (meira…)

Viðurkenningarhafar Landssambands kúabænda 2008

Árshátíð LK var þetta árið haldin á Hótel Selfossi laugardagskvöldið 5. apríl sl. Að þessu sinni voru gestir árshátíðarinnar um 240 talsins og fór hún afar vel fram, að vanda. Á árshátíðinni var nokkrum einstaklingum veitt viðurkenning LK árið 2008 og ástæður viðurkenningana tilgreindar í greinargerðum. Viðurkenningu hlutu m.a. hjónin Páll Lýðsson og Elínborg Guðmundsdóttir […]

Kvótaverð lækkar um þriðjung

Kvótaverð hefur lækkað um allt að 35 prósent frá áramótum. Samkvæmt upplýsingum frá kvótamiðlurum er verðið á kílói af þorskkvóta komið úr 4.100 krónum og jafnvel allt niður í 2.700 krónur. Lítil sem engin viðskipti hafa verið með kvóta undanfarnar vikur. (meira…)

Rúmlega 500 búnir að skrifa undir á fimm klukkutímum

Þegar þetta er skrifað hafa 518 skrifað á undirskriftalista Magnúsar Kristinssonar og félaga. Listann má finna á www.strondumekki.is en samkvæmt óvísindalegri athugun blaðamanns, eru um 70% þeirra sem á listann skrifa, búsettir í Vestmannaeyjum. Hægt er að velja þrjá búsetukosti, bý í Eyjum, brottfluttur Eyjamaður eða bý ekki í Eyjum. Þó eru einhverjir sem taka […]

FSu í úrvalsdeild

Karlalið Íþróttafélags FSu tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir þriggja leikja rimmu við Valsmenn. Oddaleiknum lauk með sigri í Iðu fyrir troðfullu húsi og var spennustigið gríðarlega hátt. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.