Veiðibanni aflétt í dag?
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta liggur fyrir að veiðibanni á loðnu verði aflétt í dag. Ekki er meira vitað að svo stöddu, hvorki nákvæmlega hvenær veiðibanninu verði aflétt né hversu miklum kvóta verði skilað til baka til útgerða. Nýjustu fréttir herma svo að Huginn VE sé á leið í land með rifna nót. Nótin rifnaði þar sem […]
Opinn kynningarfundur fyrir íbúa Sveitarfélagsins Árborgar.
Nú hefur Rækt ehf. skilað af sér niðurstöðum í endurskoðun á íþrótta- og tómstundamálum í Sveitarfélaginu Árborg, sem meirihluti bæjarstjórnar samþykkti að yrði gerð í framhaldi af tillögum frá íþrótta- og tómstundanefnd. Skýrsluna kalla þeir „Tillögur að stefnumótun Sveitarfélagsins Árborgar í íþrótta – og tómstundamálum. (meira…)
Landbúnaðarsýning 2008
Í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands 2008 verður haldin landbúnaðarsýning á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22. til 24. ágúst 2008. Um verður að ræða fjölbreytta sýningu, að segja má nokkurs konar þróunar- og tæknisýningu auk þess að henni er ætlað að kynna hlutverk og stöðu landbúnaðar í þjóðfélaginu. (meira…)
Brugghúsið ehf. kynnir bruggvél fyrir sveitahótel og veitingastaði
Á dögunum var ‘Beint frá býli’ boðið í heimsókn til Brugghússins ehf. sem er að hefja innflutning á sérhæfðum bruggvélum sem verða leigðar út til sveitahótela og veitingastaða. Þannig er hægt að bjóða heimagerðan bjór í mjög háum gæðaflokki með lítilli fyrirhöfn. Hægt er að velja um 25 tegundir af bruggi og einnig hægt að […]
Undanúrslitaleikur gegn Stjörnunni í Eyjum í dag

Unglingaflokkur karla leikur í dag einn mikilvægasta leik tímabilsins þegar liðið mætir Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 15.30 og fer fram í íþróttamiðstöðinni. Strákarnir óska eftir því að allir þeir sem vettlingi geta valdið mæti á leikinn og styðji sitt lið til sigurs. (meira…)
Ragnheiður Gröndal með tónleika á Stokkseyri
Ragnheiður Gröndal verður með tónleika á Draugabarnum Stokkseyri næstkomandi föstudagskvöld, þann 29. febrúar, og hefjast þeir kl. 21. Megum við eiga vona á frábærum tónleikum enda er Ragnheiður ein af okkar bestu söngkonum í dag. (meira…)
Mæling náðist á vestari loðnugönguna

Fiskifræðingum um borð í Árna Friðrikssyni tókst í gærkvöldi að mæla vestari loðnugönguna, sem nú er úti af Skógarsandi, austan við Vestmannaeyjar. Til stóð að fjögur loðnuskip, sem taka þátt í leitinni og mælingunni, köstuðu á loðnuna til að meta torfuna enn betur, en veður versnaði skyndilega í nótt og bíða skipin þes nú að […]
Samningur Handboltaakademíu Umf. Selfoss og Guðmundar Tyrfingssonar ehf.
Í vikunni var undirritaður samningur milli Handboltaakademíu Umf. Selfoss og Guðmundar Tyrfingssonar ehf. um samstarf næstu 4 árin. Í samningnum er samið sérstaklega um notkun á bifreiðum með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum. Á samningstímanum mun Guðmundur Tyrfingsson ehf. einnig styrkja akademíuna m.a. í formi auglýsingakaupa. . (meira…)
Vikuinnleggið minna nú en á sama tíma í fyrra
Vikuinnlegg mjólkur á Selfossi er nú minna en í sömu viku í fyrra og hefur verið svo frá í 5. viku þessa árs. Í viku 8 var innleggið 17.577 lítrum minna en fyrir ári síðan. Framan af þessu verðlagsári var vikuinnleggið mun meira en á fyrra verðlagsári og mestur var munurinn í viku 42 á […]
Ellefta landgræðslufélagið stofnað
Landgræðslufélag var stofnað í Hrunamannahreppi þann 25. febrúar s.l.og heitir það Landgræðslufélag Hrunamanna. Starfssvæði þess er Hrunamannahreppur ásamt afrétti. Er þetta 11. landgræðslufélagið sem er nú starfandi á Íslandi. Hrunamenn hafa lengi unnið að landgræðslu á afrétti sínum með góðum árangri en hann er víðáttumikið landsvæði sem nær frá byggð, inn með Hvítá að austan, […]