Klúður lögreglu til ríkissaksóknara

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, telur eðlilegt að skýrsla um flótta Annþórs Karlssonar verði send ríkissaksóknara. Ekki er ljóst hvort það er gert með það fyrir augum að rannsaka hvort einhver verði ákærður vegna málsins. (meira…)

Nokkur skip fengu risaköst í nótt

Loðnuveiðar hofust af fullum krafti um leið og veiðibanninu var aflétt í gær. Nokkur skip fengu risaköst, eða vel á annað þúsund tonn í kasti, og eru farin heim til löndunar. Nokkur skip eru á miðunum og nokkur á leiðinni þangað. Þau skip sem eiga lítinn afla fara sér þó hægt til þess að veiða […]

Allir ökumenn þurrir

Fjögur fjölmenn þorrablót voru haldin í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli um síðustu helgi. Lögreglan var sýnileg á öllum stöðunum og kannaði ástand flestra ökumanna. Enginn var tekinn grunaður um ölvun við akstur og segir Guðmundur Ingi Ingason, varðstjóri á Klaustri, lögreglumenn mjög ánægða með þá útkomu. (meira…)

�?ór tapaði mikilvægum leik gegn Haukum

Þór Þorlákshöfn tapaði gegn Haukum á heimavelli um helgina í 1.deild Íslandsmótsins í körfuknattleik. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur báðum liðum því fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í deildinni. Leikurinn var fjörugur og spennandi þó svo að Haukar hefðu unnið öruggan sigur, 70-90, en innbyrðis viðureign þessara liða gæti skipt máli ef málin þróast […]

�?k á hross á Oddavegi

Ekið var á hross á Oddavegi í Rangárþingi ytra sl. laugardagskvöld. Ekki urðu slys á fólki og mun hesturinn hafa sloppið einnig. Bifreiðin er hins vegar mikið skemmd eftir áreksturinn. (meira…)

Eldur frá kamínu

Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Hveragerði síðdegis á laugardag. Húseigandi var að prófa kamínu sem hann hafði lokið við að setja upp en varð fljótlega var við að ekki var allt með felldu. Maðurinn reif frá kamínunni og þá kom í ljós eldur upp við loft. (meira…)

Sjóvarnaráætlun í endurskoðun

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps telur brýnt að fyrirliggjandi áætlanir um sjóvarnir við Vík verði teknar til endurskoðunar. Mögulega þurfi að flýta framkvæmdum sem áætlaðar voru árið 2010 til að hefta landbrot við þorpið. (meira…)

Undirritun á samstarfssamningi við Kaupþing

Kaupþing banki og Héraðssambandið Skarphéðinn hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára og var ritað undir samning þess efnis í Hveragerði miðvikudaginn 20. febrúar sl. Kaupþing banki verður með umræddum samningi áfram aðalstyrktaraðili Landsmótsliðs HSK á Unglingalandsmótum og Landsmótum UMFÍ eins og verið hefur frá árinu 2005. Kaupþing mun styrkja öflugt Landsmótslið HSK á Unglingalandsmótum UMFÍ […]

Nefndin skili áliti þann 1. júní nk.

Nefnd sem menntamálaráðherra skipaði til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir stofnun framhaldsskóla í Rangárvallasýslu er ætlað að ljúka störfum þann 1. júní nk. Nefndina skipa Karl Kristjánsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, Sigurður Sigursveinsson, sérfræðingur ráðuneytisins og sveitarstjórarnir Unnur Brá Konráðsdóttir og Örn Þórðarson. (meira…)

Loðnuveiðar hafnar á ný

Einar Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, hefur með reglugerð, afnumið loðnuveiðibann sem tók gildi 23. febrúar. Jafnframt er gefið út breytt heildaraflamark þannig að í hlut Íslendinga koma um 100 þúsund tonn, í stað þeirra 121 þúsund tonna sem áður var búið að úthluta. Loðnuveiðar er því hafnar á ný. Skipin sem voru í höfn í Eyjum eru […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.