Grafa valt á hliðina á Hamarsvegi

Grafa valt útaf Hamarsvegi nú í morgun en ökumann sakaði ekki. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum er vélin í eigu Vinnslustöðvarinnar og var ökumaðurinn með skófluna uppi til öryggis vegna umferðarinnar sem á móti kom. Blindhríð var þegar grafan valt útaf en þegar skóflan er upp, minnkar stöðuleiki vélarinnar. (meira…)

Góð loðnuveiði við Vestmannaeyjar

Góð loðnuveiði eru nú austan við Vestmannaeyjar, en fá skip eru á miðunum þar sem þau fylla sig á skömmum tíma og eru ýmist á landleið til löndunar, eða á útleið eftir löndun. Þá lóna nokkur frystiskip í grennd við miðin og sækja sér skammta í fyrstinguna eftir þörfum. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur áfram loðnuleit […]

Hlaupársdagur 29. febrúar

Hlaupár er fjórða hvert ár nema aldamótaár. Nafnið er sennilega komið úr fornensku og dregið af því að dagsettar hátíðir hlaupa þá yfir einn vikudag milli ára. Hlaupársdagur var 24. febrúar hjá Rómverjum. Á Íslandi var Matthíasmessa sama dag einnig kölluð hlaupársmessa en hlaupársdeginum skotið inn þann 25. Á síðari öldum hefur 29. febrúar þó […]

�?jóðhræðihátíð á Stokkseyri

Þjóðhræðihátið verður haldin í þjóðfræðimiðstöðinni í Lista og menningarverstöðinni á Stokkseyri laugardaginn 1. mars kl. 16. í tilefni af voropnun Draugasetursins og Álfa, trölla og norðurljósa safnsins. Frábær tilboð verða í söfnin alla helgina (Kaupir miða í annað safnið og færð frítt í hitt) Fram koma á hátíðinni: (meira…)

Sjávarútvegurinn og Landakirkja

Núna á sunnudag verður guðs­þjónusta í Landakirkju þar sem lagt verður út frá krafta­verka­sögunni þegar Jesú mettaði fimm þúsund manns með byggbrauðum og tveimur fiskum. Áherslan verður lögð á þessa tvo fiska, kraftaverk Jesú, vonina og siðferðilega umræðu um sjáv­arútvegsmál á líðandi stundu í prédikun sr. Kristjáns Björns­sonar. (meira…)

Bræla á loðnumiðunum

Bræla hefur hamlað loðnuveiðum í dag en skipin eru nú byrjuð aftur að kasta. Skip Skinneyjar Þinganess Jóna Eðvalds er eitt þeirra skipa sem er á veiðum norðan við Vestmannaeyjar. Ægir Birgisson skipstjóri segir sex skip á miðunum og fleiri á leiðinni. (meira…)

Nokkuð harður árekstur í ófærðinni

Nokkuð harður árekstur varð nú fyrir stuttu á gagnamótum Heiðarvegs og Kirkjuvegs. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu virðist sem að jeppabifreið, sem ekið var til suðurs á Heiðarvegi hafi ekki virt stöðvunarskyldu á gatnamótunum og fólksbíll, sem var á austurleið á Kirkjuvegi, ók inn í hliðina á honum. Bílarnir báðir eru talsvert skemmdir en […]

Námskeiðinu aflýst vegna lélegrar þátttöku

Fyrirhuguðu námskeiði LBHÍ um fjárhúsbyggingar og vinnuhagræðingu sem vera átti á Kirkjubæjarklaustri þriðjudaginn 4. mars n.k. hefur verið aflýst vegna þátttökuleysis. (meira…)

Snorri Sturluson VE seldur?

Í gær var áhöfn Snorra Sturlusonar VE tilkynnt að erlendur aðili hefði áhuga að skoða skipið með kaup á því í huga. Í samtali eyjar.net staðfesti Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri Ísfélagsins að félagið hefði fengið tilboð í skipið með fyrirvörum um skoðun og öðrum eðlilegum fyrirvörum. Ísfélagið hefur ekki gengið endanlega frá sölu á skipinu […]

Klúður lögreglu til ríkissaksóknara

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, telur eðlilegt að skýrsla um flótta Annþórs Karlssonar verði send ríkissaksóknara. Ekki er ljóst hvort það er gert með það fyrir augum að rannsaka hvort einhver verði ákærður vegna málsins. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.