�?egar hafa margar góðar ábendingar borist

„Við höfum nú þegar fengið þónokkur viðbrögð og margar góðar ábendingar og ég hvet Vestmannaeyinga til þess að skoða gögnin á Netinu og vera óhræddir við að notfæra sér þetta tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs Siglinga stofnunar, í viðtali við Vaktina, en útboðsgögn væntanlegrar Bakkafjöruferju […]
Brottför Herjólfs frá �?orlákshöfn seinkað til 14.00

Herjólfur mun aðeins fara eina ferð í dag en skipið er nú í Þorlákshöfn. Skipið fór samkvæmt áætlun frá Vestmannaeyjum klukkan átta í morgun en vegna ófærðar í þrengslum hefur brottför skipsins úr Þorlákshöfn verið frestað til klukkan 14.00 í dag. Síðari ferð hefur þess vegna verið aflýst. (meira…)
Vaktinni ekki dreift með póstinum vegna ófærðar
Vegna erfiðrar færðar í Vestmannaeyjum í dag er óvíst hvort hægt verði að bera út póst fyrr en á mánudag. Af þeim sökum verður Vaktin ekki borin út þessa vikuna en þess í stað mun blaðið liggja í öllum helstu verslunum bæjarins. Auk þess er hægt að lesa blaðið hér á netinu. Í Vaktinni er […]
Tvö Eyjalið í 8 liða úrslitum Futsal
Bæði liðin frá Vestmannaeyjum sem tóku þátt í Íslandsmótinu í Futsal eru komin í 8 liða úrslit Íslandsmótsins. Liðin léku saman í riðli en ÍBV vann alla sína leiki. Hins vegar gekk keppni í riðlinum ekki vel, þrjú af fimm liðum drógu sig úr keppni og eftir stóðu bæði KFS og ÍBV sem komust þar […]
Framfaraspor fyrir atvinnulíf og þróun byggðar í Eyjum

Í gær, 23. janúar, fór fram stofnun Þekkingarseturs Vestmannaeyja í Alþýðuhúsinu. Í mars á síðasta ári hófst undirbúningur að endurskipulagningu rannsókna- og háskólastarfsemi í Vestmannaeyjum og var starfshópi, skipuðum fulltrúum Vestmannaeyjabæjar, Menntamálaráðuneytis, Rannsókna- og fræðasetursins og atvinnulífsins, falið verkefnið. (meira…)
Síðustu sýningar á Svörtum fugli í Vestmannaeyjum

Síðustu sýningar á verkinu Svartur fugl eftir David Harrower verða í Vestmannaeyjum um helgina, þann 26. og 27. janúar kl. 20.00. Verkið var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í sl. haust og fór svo á leikferðlag til Egilsstaða, Ísafjarðar og verður sýnt í Vestmannaeyjum nú um helgina sem fyrr sagði. Ferðalagið hefur verið vel heppnað og mikil […]
Verðugur virðingarvottur

Síðasta laugardag var opnuð málverkasýningin „Vestmannaeyjar í augum meistaranna fyrir gos” í Akógeshúsinu. Á sýningunni eru verk eftir meistara eins og Ásmund Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Engilbert Gíslason, Guðna Hermansen, Svein Björnsson og Júlíönu Sveinsdóttur. (meira…)
Minningunni um upphaf eldgossins sýndur mikill sómi í kvöld

Glæsilegri Þakkargjörðarhátíð er nú að ljúka með stuttri helgistund í Landakirkju en óhætt er að segja að kvöldið hafi verið einstaklega vel heppnað, þó svo að vetur konungur hafi minnt aðeins of mikið á sig með mikilli snjókomu. Þakkargjörðarhátíðin hófst með blysför sem hátt í tvö þúsund manns tóku þátt í, ungir sem aldnir en […]
Hass í húsi
Húsleit var gerð í Hveragerði aðfaranótt föstudags vegna gruns um fíkniefnamisferli húsráðanda. Við leitina fannst lítilræði af hassi. Einn maður var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hann var síðan yfirheyrður vegna þessa máls og annarra sem lágu fyrir. (meira…)
Tvö gistiheimili á borði skipulagsnefndar
Tvær umsóknir um starfsemi gistiheimila í Þorlákshöfn voru á borði Skipulags- og byggingarnefndar Ölfuss á síðasta fundi. Stefán Jónsson hyggst opna gistiheimili að Unubakka 4 og Laufskálar ehf. hafa fest kaup á Reykjabraut 2, þar sem Póstur og sími var áður til húsa. Þar verður opnaður veitingastaður með gistiheimili á efri hæðinni. Ekkert gistiheimili er […]