Mikill eldur kom upp í Fiskiðjunni í nótt

Rétt uppúr klukkan hálf fjögur í nótt var slökkvilið í Vestmannaeyjum kallað að húsi Fiskiðjunnar, vestuhúsi sem áfast er gamla Ísfélaginu, og var mikill eldur í sal á annarri hæð þegar að var komið. Ekki er vitað um eldsupptök en lögreglan rannsakar mannferðir í Fiskiðjunni í nótt. (meira…)

Ráðinn í menntamálaráðuneytið

Ráðinn í menntamálaráðuneytiðSigurður Sigursveinsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur við starfi í Menntamálaráðuneytinu þann 1. febrúar næstkomandi. Þar mun hann vinna að verkefnisstjórn við gerð skólasamninga við einstaka framhaldsskóla. (meira…)

Slæm veðurspá fyrir morgundaginn

Stjórnendur m.s. Herjólfs hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir að útlit sé fyrir að skipið sigli ekki fyrri ferð sína í fyrramálið, vegna slæmrar veðurspár. Samkvæmt veðurspá belgings.is verður komið snælduvitlaust veður seinnipartinn í nótt og mun standa eitthvað fram á daginn. (meira…)

Vildi hafa lifandi gínur í verslunarglugganum sínum

Enginn miskunn er bók um lífshlaup ævintýramannsins Eyþórs Þórissonar, núverandi veitingamanns á Seyðisfirði. Hann hefur lengst af verið kvensamur og drykkfeldur en komið ótrúlega víða við. Eyþór dvaldi um nokkurra ára skeið í Vestmannaeyjum og setti sinn svip á bæjarlífið. Hann rak hér verslun, stundaði sjóinn og sitthvað fleira. Í bókinni fjallar hann um kynni […]

Duglegir skólakrakkar

Í þeim veðraham sem verið hefur í haust er það varla nema fyrir hraustustu krakka að ganga í skólann sinn. Þessir krakkar, sem heita Arna Dögg, Óliver og Arnar Þór, nemendur í 1.ÍR og Þórey, nemandi í 4. HA, eru meðal annarra duglegra krakka sem ganga í skólann, nánast uppá hvern dag. (meira…)

Vindhviður í 49 metra í nótt

Gríðarlegt veður, enn eina ferðina, gekk yfir sunnanvert landið í nótt og víða mjög hvasst. Á Stórhöfða var 10 mínútna meðalvindur, 39 metrar á sekúndu milli kl. 1 og 3 í nótt. Á þessum tíma sló vindmælirinn ítrekað í 49 metra í mestu hviðunum. Og enn er veðurspáin vindasöm. (meira…)

Herjólfi seinkar aftur

Bílaferjan Herjólfur er nú á leið til Eyja og miðar hægt. Skipsstjórinn sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að hann reiknaði með að komast til Eyja um klukkan 1.30 í nótt eða um 3 tímum á eftir áætlun. Um borð eru um 25 farþegar og 15 bílar. Vindhraði um 25 til 30 metrar á sekúndu. […]

Frístundakort og lægri leikskólagjöld

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ákveðið að lækka leikskólagjöld um 20% frá og með 1. janúar nk. Þá stendur einnig til að taka upp frístundakort sem þýðir að allir íþróttaiðkendur yngri en 18 ára geta sótt um styrk, sem getur numið allt að 20 þúsund krónum á ári. (meira…)

Jólatónleikar Kóra Vallaskóla

Hinir árlegu jólatónleikar Kóra Vallaskóla verða haldnir föstudaginn 14. desember í Austurrými Vallaskóla, Sólvöllum. Tónleikarnir hefjast kl. 18:00 og standa í um 45 mínútur. (meira…)

�?órarinn Eldjárn og sr. �?órhallur á Bókakaffinu

Þórarinn Eldjárn og sr. Þórhallur Heimisson lesa upp á Sunnlenska bókakaffinu á fimmtudagskvöld, þann 13. desember kl. 20:30. Þórarinn sem er eitt ástsælasta ljóðskáld þjóðarinnar sendir að þessu sinni frá sér þrjár bækur, ljóðabókina Fjöllin verða að duga og barnabækurnar Gælur, fælur og þvælur og Tíu litlir kenjakrakkar sem báðar eru myndskreyttar af systur hans […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.