Hrífandi tónar í Skáholtsdómkirkju

Árlegir Aðventutónleikar fóru fram í Skálholtsdómkirkju sl. laugardag. Fram komu Skálholtskórinn, Barna og kammerkór Biskupstungna. Einsöng sungu Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Árni Pálsson og Henríetta Ósk Gunnarsdóttir. Stjórnandi var Hilmar Örn Agnarsson og konsertmeistari Hjörleifur Valsson. Sjö hljóðfæraleikarar léku undir. (meira…)

Jólamess í Tilraunaeldhúsinu

Laugardaginn 15. desember kl. 17:00 – 18:00 verður jóladagskrá í Listasafni Árnesinga með Kira Kira, Kippa Kaninus og Apaflösu. (meira…)

Bráðum koma blessuð jól . . .

Fjöldi listamanna kemur fram á jólatónleikum í Skálholtskirkju laugardaginn 15. desember kl.16:00. Einsöngvararnir Raggi Bjarna, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Árni Þór Lárusson, 13 ára, syngja einsöng og dúetta ásamt Kammerkór Suðurlands og Kammerkór Biskupstungna undir stjórn Hilmars Arnar Agnarsson. (meira…)

Markaður Hveragerðisdeildar Rauða krossins

Frá því á haustdögum hefur hópur sjálfboðaliða komið saman vikulega hjá Hveragerðisdeild Rauða krossins og prjónað til góðra verka. Afurðir hópsins, ungbarnateppi, treflar, húfur, sokkar og fleira, verður nú selt á basar til styrktar hjálparstarfi. (meira…)

Á að selja frumburðaréttinn fyrir einn baunadisk?

Ágætu EYJAMENN. Undanfarið hafa fjölmargir tjáð sig um erfiðleika og slæma skuldastöðu ÍBV og einnig hafa menn tengt þá umræðu á samþykkt bæjaryfirvalda á byggingu Knattspyrnuhúss. Ég eins og aðrir hefi áhuga og um leið áhyggjur af framtíð ÍBV og leyfi mér hér, að setja á blað það sem ég er að hugsa. (meira…)

Tónleikar í kvöld

Skólalúðrasveit Vestmannaeyja heldur tónleika í Hvítasunnukirkjunni í kvöld klukkan 20.00. Skólalúðrasveitin býður bæjarbúum til jólatónleika í tilefni af 30 ára afmæli sveitarinnar. (meira…)

Leikfélagið fékk 300 þúsund í afmælisgjöf

Sjö aðilar fengu styrk úr seinni úthlutun Lista- og menningarnefndar Árborgar. Alls bárust 12 umsóknir og námu beiðnirnar samtals rúmlega fjórum milljónum króna en ein milljón var til úthlutunar. (meira…)

Sektaður um 2,8 milljónir

56 árs gamall Selfyssingur var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot. Honum var einnig gert að greiða 2,8 milljónir í sekt, ellegar sitja í fangelsi í 72 daga. (meira…)

Róleg vika hjá lögreglunni

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið. Samt sem áður hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða borgarana við hin ýmsu tilvik sem upp komu. (meira…)

Fjárhagsleg staða félagsins mætti vera betri

Fjárhagsmál ÍBV íþróttafélags, einkanlega erfið skuldastaða, er mjög til umræðu á spjallvef félagsins. Ljóst er að lítið má útaf bera í fjáröflun félagsins eins og t.d. Þjóðhátíð, ef ekki á illa að fara. Það er því kannski ekki óeðlilegt að stjórn félagsins kanni alla möguleika að rétta fjárhaginn af, bæði í sparnaði og eins í […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.