Körfuknattleikslið ÍBV fær mikinn liðsstyrk

Sigurjón Örn Lárusson heitir sá kappi og er 195cm á hæð. Spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið strax eftir áramót. Mun Sigurjón styrkja liðið mikið og ekki verra að fá fleiri góða á æfingarnar hér í Eyjum. Næsta sunnudag mun Sigurjón hinsvegar leika sinn síðasta leik fyrir körfuknattleikslið Stjörnunnar þar sem hann hefur ákveðið […]

Selfyssingar stóðu sig frábærlega

Fimleikadeild Umf. Selfoss hélt Haustmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum á Selfossi dagana 23.-25. nóvember. Mótið var fjölmennt en rúmlega 200 keppendur mættu til leiks. Keppt var í flokki barna og unglinga í landsreglum og í flokki juniora í Evrópureglum. Fimleikadeild Selfoss átti fjölmarga keppendur á mótinu, bæði stráka og stelpur sem stóðu sig frábærlega. (meira…)

Vel heppnaður Forvarnardagur

Forvarnardagurinn var haldinn í annað sinn í síðustu viku í öllum grunnskólum landsins. Skólarnir níu á sambandssvæði HSK, sem eru með 9. bekk, tóku allir þátt í verkefninu í ár. (meira…)

Tillaga um malbikaða hraðbraut inn í �?órsmörk felld

Mælsku- og rökræðukeppni fór fram á dögunum milli sameinaðra sveitarstjórna í Rangárvallasýslu og ITC Stjörnu og félaga. Keppnin fór fram í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Ræðuefnið var tillaga um að leggja malbikaða hraðbraut í Þórsmörk og eftir harða keppni hafði lið ITC Stjörnu og félaga betur. (meira…)

Karma á Draugabarnum

Draugabarinn klikkar ekki á laugardagsgeiminu en að þessu sinni stígur hljómsveitin Karma á stokk. (meira…)

Seinni ferð Herjólfs aflýst í dag

Síðari ferð Herjólfs í dag, fimmtudag hefur verið slegin af þar sem spáð er stormi þegar líður á daginn. Herjólfur fór fyrri ferð í morgun og fer frá Þorlákshöfn klukkan 12.00 og verður það eina ferð skipsins í dag. Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér stormviðvörun en spáð er allt að 25 metra vindhraða í […]

Handboltastrákarnir hreinsa brunarústir

Strákarnir í mfl karla hafa undanfarið verið á kafi í vinnu við að hreinsa brunarústir. Þeir tóku verkið að sér til að safna í leikmannasjóð. Sjóðurinn er notaður í t.d. æfingaferðir og ýmislegt annað utan hefðbundinna verkefna flokksins. Peyjarnir hafa nú afhent handboltadeildinni 250.000 af þessum peningum til reksturs deildarinnar. (meira…)

Jötunn-Vélar kaupa Remfló

Jötunn-Vélar á Selfossi hafa keypt fyrirtækið Remfló sem flytur inn varahluti og rekstrarvörur fyrir mjólkurframleiðendur, auk þess að þjónusta þá. Jötunn-Vélar taka við rekstrinum nú um mánaðarmótin. Kaupverðið er ekki gefið upp en Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötunn-Véla segir verðmiðann sanngjarnan. (meira…)

Leikfélagið fékk mest úr listasjóði

Úthlutað hefur verið í þriðja sinn úr Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss. Alls bárust fjórar styrkumsóknir í kjölfar auglýsingar en úthlutað verður 200.000 krónum. Hæsti styrkur fer til Leikfélags Ölfuss, 60 þúsund krónur til að kosta leiklistarnámskeið sem leikfélagið hefur haldið. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.