Aladdin frumsýndur í Hveragerði

Laugardaginn 1. desember frumsýnir Leikfélag Hveragerðis barnaleikritið Aladdin. Leikgerð og leikstjórn er í höndum Hafsteins Þórs Auðunssonar, stjórnarmanns í LH. Æfingar hófust í byrjun september en mikið hefur gengið á hjá leikfélaginu við hönnun leikmyndar enda var öllu snúið við í húsinu. Mikið er lagt upp úr búningum og sér Anna Jórunn Stefánsdóttir um hönnun […]
�?rír menn sýknaðir af hópslagsmálum á Hellu
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði þrjá karlmenn af ákæru um líkamsárás í síðustu viku. Kærandi í málinu krafði þá um rúmlega 800 þúsund krónur í miskabætur fyrir að nef- og rifbeinsbrjóta sig í meintri líkamsárás. (meira…)
Mugison í �?jórsárveri
Tónlistarmaðurinn Mugison er nú á ferð um landið til að kynna nýjustu hljómplötu sína, Mugiboogie. Hann heldur tónleika í Þjórsárveri í Flóahreppi á morgun, föstudagskvöld. (meira…)
Kveikt á jólatrénu á laugardaginn

Kveikt verður á stóra jólatrénu í miðbænum næsta laugardag, 1. desember. Tréð verður staðsett á Stakkagerðistúni. (meira…)
Suðurstrandarvegur og vegur um Lyngdalsheiði í startholunum

Suðurstrandarvegur verður boðinn út í janúar næstkomandi. Vegurinn verður væntanlega boðinn út í tveimur áföngum. Sá hluti vegarins sem er tilbúinn í útboð, um 20 km kafli frá Þorlákshöfn að Krýsuvík verður boðinn út í janúar, en seinni hlutinn frá Krýsuvík að Ísólfsskála skammt frá Grindavík ætti að geta verið boðinn út í vor. Þar […]
Gjafavöruverslun með meiru

Mæðgurnar Erla Gísladóttir og Ásta Björg Kristinsdóttir hafa opnað verslunina Motivo á Selfossi. Þar eru seldar gjafavörur fyrst og fremst en einnig er myndarlegt úrval húsgagna, ljósa og veggfóðurs. (meira…)
Vosbúð opnuð með pompi og prakt

Vosbúð, félagsheimili unglinga í Vestmannaeyjum var opnað með pompi og prakt í dag við Strandveg. Langþráður draumur ungmenna í Vestmannaeyjum rætist þar með en í nokkurn tíma hefur aldurshópurinn 16 til 25 ára kvartað yfir aðstöðuleysi á kvöldin og um helgar. Nú hefur ræst úr og er aðstaðan hin glæsilegasta. (meira…)
Vatnalíf Gunnars Sigurgeirssonar

Vatnalíf, heimildamynd Gunnars Sigurgeirssonar um Veiðivötn, er komin í verslanir á DVD-disk. Þetta er í fyrsta sinn sem gefið er út efni um sögu, veiði og náttúru Veiðivatna. Myndin er í fullri lengd og var fjögur ár í vinnslu. (meira…)
Fjórir fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna reksturs Bakkafjöruferju

Ríkiskaup hafa tilkynnt hvaða aðilar fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna reksturs Bakkafjöruferju. Eins og greint hefur frá áður sóttust Vinnslustöðin og Vestmannaeyjabær um að fá að taka þátt í útboðinu sameiginlega. VV-samvinnan fær að taka þátt í útboðinu en auk þeirra fá Eimskip, Samskip og Nýsir hf. (meira…)
Brennivínsþjófur í 30 daga fangelsi

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi á þriðjudag karlmann í 30 daga fangelsi fyrir að stela vodkapela úr verslun ÁTVR í Hveragerði. Maðurinn var handtekinn degi fyrr en ákveðið var að draga hann fyrir dómstóla sem fyrst til þess að spara ákæruvaldinu vinnu. (meira…)