Vinnuslys í Grímsnesi
Iðnaðarmaður var um hádegisbilið í dag fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir vinnuslys í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Lögregla telur að maðurinn hafi hrapað um 2 – 3 metra úr stiga þegar hann var að vinna við húsasmíðar. Hann hlaut höfuðáverka en ekki liggur fyrir hversu alvarlegir þeir eru. (meira…)
ÍBV með tvo landsliðsmenn í knattspyrnu

Augustine N’sumba, eða „Gústi“ eins og hann er kallaður af liðsfélögum sínum í Eyjum fékk, tímabundin félagaskipti úr ÍBV eftir lok síðasta tímabils. Hann vildi halda sér í leikformi og fá aðgang að góðri æfingaaðstöðu. Það virðist hafa borgað sig því hann var valinn í landslið Úganda í síðustu viku. (meira…)
Aðalfundur Félags Austfirðinga í Vestmannaeyjum annað kvöld
Aðalfundur Félags Austfirðinga í Vestmannaeyjum verður haldinn á morgun, miðvikudag 28. nóvember klukkan 20.00 í Alþýðuhúsinu en ekki á fimmtudag eins og kom fram í auglýsingu í Fréttum í síðustu viku. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. (meira…)
Opið hús í Vosbúð í dag

Þann 1. mars 2007 samþykkti Menningar -og tómstundaráð Vestmannaeyja að koma á fót Menningarmiðstöð fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára en töluverður þrýstingur hafði þá verið á bæjaryfirvöld frá ungmennum vegna aðstöðuleysis. Vestmannaeyjabær tók á leigu húsnæði Miðstöðvarinnar, Vosbúð, við Strandveg 65. Ungmennin sjálf hafa unnið þá undirbúningsvinnu sem vinna þurfti til að koma húsinu […]
Eyjamenn ósáttir við vinnubrögð ÍR-inga

Á laugardaginn átti 9. flokkur drengja í körfubolta að leika gegn ÍR í bikarkeppni flokksins. Allt var klárt, leikmenn ÍBV og dómarar mættir til leiks en þegar á reyndi komu ÍR-ingar ekki til Vestmannaeyja og gerðu það án þess að láta kóng né prest vita. ÍBV var dæmdur sigur, 20:0 en Eyjamenn fordæma samt sem […]
Tekinn með 2,5 gr. af hassi í bílnum um helgina

Það var öllu meira að gera hjá lögreglu í vikunni sem leið en á undanförnum tveimur vikum og ýmis mál sem komu upp. M.a. þurfti lögreglan að skakka leikinn á milli manna sem voru að takast á fyrir utan öldurhús bæjarins. Tveir fengu að gista fangageymslu lögreglu um helgina, annar vegna ölvunar og óspekta en […]
Vinnslustöðin og Ísfélagið ekki að sameinast
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélags Vestmannaeyja, segir að markmiðið með kaupum félagsins í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum sé ekki að sameina félögin tvö enda sé það ekki hægt vegna kvótaeignar þeirra. (meira…)
Hrós til handboltaliðsins

Eftir þær hremmingar sem ÍBV liðið í handbolta hefur gengið í gegnum eiga þeir skilið hrós fyrir frábæran karakter sem þeir sýndu á laugardaginn gegn Aftureldingu. Þeir lentu sex mörkum undir í fyrri hálfleik og oft hefur það nægt til þess að menn missi trúna á verkefninu, sérstaklega í vetur. Liðið hefur oft á tíðum […]
Föndurdagur á Sóla í dag

Í dag, mánudaginn 26. nóvember verður jólaföndurdagur foreldrafélagsins í leikskólanum Sóla. Föndrið verður haldið milli 17 og 19 í húsakynnum leikskólans en hægt verður að kaupa keramik til að mála og annað föndur á staðnum. Foreldrafélagið býður þátttakendum upp á piparkökumálun og heitt kakó með rjóma. Og að sjálfsögðu eru systkini velkomin með á föndurdaginn. […]
Aðeins seinni ferð Herjólfs í dag

Nú hefur verið ákveðið að fresta fyrri ferð Herjólfs í dag og því fer hann aðeins síðari ferð klukkan 16.00 frá Vestmannaeyjum og 19.30 frá Þorlákshöfn. Mjög slæmt veður var í gærkvöldi sem tafði ferð Herjólfs (meira…)