Flutningskostnaður hækkað um 132% frá ársbyrjun 2019

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í vikunni. Þar sem bæjarráð tók fyrir bréf Fiskfraktar ehf. sem sent var ráðinu og stjórn Herjólfs ohf. Í bréfinu er óskað eftir að stjórn Herjólfs endurskoði stefnu sína um verðhækkanir og afnám afsláttarkjara til handa flutningsfyrirtækjum. Fram koma í bréfinu áhyggjur félagsins af hækkunum ferða hjá […]

Þriggja ára deilu lauk með samningi til tíu ára

„Kátt er á hjalla  og vöfflulyktin angar í Karphúsinu í kvöld þar sem forsvarsmenn Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) eru að skrifa undir nýja kjarasamninga. Samningar þessir eiga að gilda til tíu ára,“ segir í frétt á visir.is rétt í þessu. Kolbeinn Agnarsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum var í dag bjartsýnn á […]

„Hrognin eru að koma, gerið kerin klár“

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru markaðsráðandi á heimsvísu í framleiðslu loðnuhrogna. Ætla má að 80–100% heimsframleiðslunnar á hverju ári sé í sjávarþorpum Íslands. Loðnuhrogn eru nýtt á margvíslegan hátt en yfirleitt eru þau hrá við neyslu. Hreinlæti og ferskleiki skipta því afar miklu máli við framleiðsluna. En erfiðast af öllu er að hrognavertíðin stendur einungis í 10–20 […]

Ný deild á Sóla tilbúin um mánaðarmótin

Staða inntökumála í leikskóla var til umræðu á fundi fræðsluráðs í gær. Gert er ráð fyrir að börn fædd 2021, sem óskuðu eingöngu eftir leikskólavist á Sóla, verði komin í leikskóla um mánaðamótin febrúar-mars þegar ný deild á Sóla verður tilbúin. Nokkur börn í árgangi 2022 hafa hafið skólagöngu í Kirkjugerði. Sóli hefur svigrúm til […]

Haftyrðlar í vanda staddir

Upp á síðkastið hafa borist tilkynningar til Náttúrufræðistofnunar Íslands um haftyrðla í vanda. Er þá um að ræða fugla sem hafa hrakist upp á land í óveðrum og strandað þar en haftyrðlar eru ófærir um að hefja sig til flugs af landi. Á vef Náttúrufræðistofnunar er tekið fram að ef ekki sér á fuglunum er […]

Erlingur hættir eftir tímabilið

Erlingur Richards­son mun láta af störfum sem þjálfari karla­liðs ÍBV í hand­bolta eftir yfir­standandi tíma­bil. Þetta staðfesti Vilmar Þór Bjarnason framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV í samtali við Eyjafréttir rétt í þessu. Hann staðfesti að leit stæði nú yfir af eftirmanni Erlings. Erlingur hefur þjálfað liðið frá árinu 2018 þegar hann tók við þjálfun þessi í þriðja […]

Fimm sækja um stöðu lögreglustjóra

„Fimm hafa sótt um embætti lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyj­um sem dóms­málaráðuneytið aug­lýsti laust til um­sókn­ar ný­verið,“ segir á mbl.is. Staðan losnaði þegar Grímur Hergeirsson, fráfarandi lögreglustjóri tók við sem lögreglustjóri á Suðurlandi. Um­sækj­end­ur eru: Arn­dís Bára Ingimars­dótt­ir, aðstoðarsak­sókn­ari Arn­fríður Gígja Arn­gríms­dótt­ir, aðstoðarsak­sókn­ari Karl Gauti Hjalta­son, lögmaður Krist­mund­ur Stefán Ein­ars­son, aðstoðarsak­sókn­ari Sig­urður Hólm­ar Kristjáns­son, aðstoðarsak­sókn­ari Dóms­málaráðherra skip­ar […]

Ekki meira siglt í dag

Herjólfur..jpg

Ákveðið hefur verið að fella niður seinni ferð dagsins vegna veðurs og sjólags. Skv. spá á að bæta í vind þegar líða tekur á kvöldið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþega, fraktar og áhafnarmeðlima í huga. Þeir farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að […]

Landsnet – Auka á afhendingaröryggið í Vestmannaeyjum

–  Vestmannaeyjastrengur 1 tekinn úr rekstri, varaafl keyrt á meðan Miðvikudaginn 8. febrúar kl. 21:00 munum við þurfa að taka Vestmannaeyjastreng 1 úr rekstri í 2 -3 tíma vegna vinnu i tengirými Landsnets og í dreifistöð 14 hjá HS Veitum. Aðgerðin  er ætluð til þess að auka afhendingaröryggi i Eyjum á meðan  Vestmannaeyjastrengur 3 er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.