Kristján hættir með ÍBV

Kristján Guðmundsson þjálfari meistaraflokks karla ÍBV hefur tekið þá ákvörðun um að hætta þjálfun liðsins eftir leik liðsins gegn Grindavík á laugardag. Leikmönnum var tilkynnt um þetta eftir æfingu liðsins fyrr í dag. Síðastliðin 2 ár hefur Kristján unnið gott starf fyrir ÍBV og lagt sitt af mörkum í að gera ÍBV að stöðugu liði […]

Samstarfið milli ÍBV og N1 hefur verið með eindæmum farsælt

N1 er á nýjan leik aðalstyrktaraðili ÍBV í handbolta til næstu tveggja ára. N1 hefur stutt ríkulega við handboltann undanfarin 4 ár og hefur félagið náð einstökum árangri á þeim tíma. Samstarfið milli ÍBV og N1 hefur verið með eindæmum farsælt og styður þessi samningur vel við áherslur N1 um uppbyggingu á íþróttastarfi til framtíðar […]

Ian Jeffs hættur með kvennalið ÍBV

Ian Jeffs er hættur sem þjálfari kvennaliðs ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net. Samningur Jeffs er að enda og hann ætlar ekki að framlengja hann. Jeffs hefur þjálfað ÍBV undanfarin fjögur tímabil en í ár endaði liðið í 5. sæti í Pepsi-deildinni. Í fyrra varð ÍBV bikarmeistari undir stjórn Jeffs en liðið […]

Ég er að halda mig við það plan sem ég setti mér

„Það er ekkert til í þessu,” sagði Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands í samtali við Fótbolta.net, þegar hann var spurður út í kjaftasögur í Pepsi-mörkunum í gær, en þar var Heimir orðaður við þjálfarastöður hjá ÍBV og KA. Heimir hætti sem þjálfari íslenska landsliðsins í júlí og hefur fengið talsvert af fyrirspurnum erlendis frá síðan þá. […]

Clara gerir það gott með U-17

Stúlkurnar í U17 landsliði Íslands eru komnar í milliriðil í undankeppni fyrir EM eftir stórsigur gegn Moldavíu í gær. Riðillinn fer fram í Moldavíu og var því Ísland að spila á móti heimaliðinu.  Clara Sigurðardóttir úr ÍBV skoraði þrjú mörk. Sigurinn þýðir það að farseðillinn í milliriðla er staðfestur en tvö efstu lið riðilsins fara […]

ÍBV tryggði sæti sitt í efstu deild að ári

Eyjamenn tryggðu sæti sitt í efstu deild á næsta tímabili í dag með góðum sigri á nýkrýndum Bikarmeisturum Stjörnunnar á Hásteinsvelli í dag. Um leið gerðu þeir svo gott sem út um íslandsmeistaradrauma Stjörnumanna. Stjarnan komst yfir á 23. mínútu þegar Halldór Páll Geirsson, markvörður ÍBV, felldi Guðjón Baldvinsson inn í teig Eyjamanna. Hilmar Árni […]

Síðasti heimaleikur karlanna í dag

Þá er komið að því! Síðasti heimaleikurinn á tímabilinu 2018. ÍBV- Stjarnan sunnudaginn 23. sept. kl. 14:00. Heiðursgestir leiksins verða 20 og 50 ára íslands- og bikarmeistarar. Pallapartý klukkutíma fyrir leik (verður inni ef veðrið leikur ekki við okkur líkt og síðast). Pulsur og öl fyrir alla í ÍBV búning og/eða bakhjarla ÍBV. Sparkvöllur fyrir […]

Tap hjá báðum liðum í dag

Í Olísdeild kvenna í handbolta fengu Eyjastúlkur nýliða HK í heimsókn. HK stúlkur byrjuðu leikinn mikið betur og leiddi leikinn framan af. ÍBV átti þá góðan kafla og komst yfir og leiddu með tveimur mörkum í hálfleik. HK stúlkur byrjuðu seinni hálfleikin enn betur en þann fyrri og leiddu með fimm mörkum í góðan tíma. […]

Eyjastúlkur enda í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar

Það var ekki mikið undir þegar stelpurnar í ÍBV sóttu Selfoss heim í loka umferð Pepsí-deildar kvenna í dag. Eyjastúlkur byrjuðu leikinn af miklum krafti og fengu þrjú dauðafæri á fyrstu mínútu leiksins. ÍBV hélt pressunni vel í fyrri hálfleik en Selfoss vörnin hélt og staðan 0-0 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var með heldur rólegra […]

Lokahóf yngri flokka fer fram á fimmtudag

Lokahóf yngri flokka í knattspyrnu verður haldið í Týsheimilinu á morgun fimmtudag. Dagskráin er sem hér segir: Kl. 15.30 – 16.15  7. og  8.flokkur. Kl. 16.30 – 17.15  5. og  6.flokkur. Kl. 18.30 – 20.00  3. og  4.flokkur. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mæta með iðkendum. ÁFRAM ÍBV (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.