Jafntefli í baráttuleik gegn Haukum

Strákarnir í ÍBV léku sinn síðasta heimaleik í Olís-deildinni, fyrir úrslitakeppnina, í gærkvöldi er þeir tóku á móti Haukum.

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu frá upphafi til enda. Á fyrsti mínútum leiksins fékk Ásgeir Örn Hallgrímsson að líta rauða spjaldið fyrir að skella Daníel Erni Griffin í gólfið sem  var fluttur á sjúkrahús til skoðunar vegna gruns um heilahristing. Eftir rauða spjaldið tóku Haukar völdin á vellinum og leiddu 13-17 í hálfleik.

Haukar náðu mest fimm marka forystu. Eyjamenn hrukku þá í gang og náðu að jafna á 48. mínútu 23-23. Jafnt var á öllum tölum það sem eftir lifði leik. Kristján Örn Kristjánsson var hársbreidd frá því að næla í öll stigin með aukakasti á síðustu mínútu en boltinn endaði í slánni. 27-27 jafntefli varð því niðurstaðan og möguleikinn á fjórða sætinu og heimaleikjaréttinum í úrslitum því úr sögunni. Með sigrinum tryggðu hins vegar Haukar sér Deildarmeistaratitilinn.

Þeir Fannar Þór Friðgeirsson og Kristján Örn Kristjánsson voru markahæstir í liði Eyjamanna með sjö mörk hvor. Aðrir markaskorarar voru Hákon Daði Styrmisson – 6 / 3, Sigurbergur Sveinsson – 2, Dagur Arnarsson – 2, Friðrik Hólm Jónsson – 1, Magnús Stefánsson – 1 og Kári Kristján Kristjánsson – 1. Björn Viðar Björnsson varði 9 skot í markinu.

ÍBV mætir svo Fram í lokaumferð Olís-deildarinnar á sunnudaginn kl. 19.30 þá kemur í ljós hverja þeir fá sem mótherja í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.